Innlent

Einn handtekinn fyrir líkamsárás

Einn karlmaður var handtekinn á Akureyri í nótt fyrir líkamsárás. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni náðist árásarmaðurinn og er hann í haldi. Hann verður yfirheyrður þegar hann vaknar.

Maðurinn sem varð fyrir árásinni þurfti að leita sér aðhlynningar á spítala en ekki er ljóst hversu alvarleg mein hans eru. Líkamsárásin verður kærð.

Þá var einn ökumaður stöðvaður fyrir ölvunarakstur í morgun.

Að sögn lögreglunnar var mikill erill á Akureyri í nótt, mikið fólk var í bænum og hafði lögreglan því í nógu að snúast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×