Innlent

Stal bíl foreldranna, ók á þrjá aðra bíla og ljósastaur

13 ára unglingur tók bifreið foreldra sinna ófrjálsri hendi síðasta föstudag. unglingurinn ók svo bílnum frá Hnífsdal til Ísafjarðar að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum.

Á Fjarðarstrætinu missti unglingurinn stjórn á bifreiðinni og ók utan í þrjá bíla og endað á ljósastaur sem féll niður við höggið og skemmdi einn bílinn.

Miklar skemmdir eru á öllum bílunum að sögn lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×