Veiðibannið í endurskoðun 24. apríl 2010 05:30 Nýjar tillögur um fyrirkomulag hvalveiðibanns verða ræddar á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Marokkó í júní.nordicphotos/AFP
Fréttaskýring: Næst friður um hvalveiðar? Tillaga formanns og varaformanns Alþjóðahvalveiðiráðsins um breytt fyrirkomulag hvalveiðibanns fyrir næstu tíu árin er sett fram í þeirri von að hún nægi til að stilla til friðar innan ráðsins, þannig að bæði hvalveiðiþjóðir og andstæðingar hvalveiða megi vel við una. Allt hefur verið í uppnámi í ráðinu árum saman og útlit fyrir að Ísland og jafnvel fleiri hvalveiðiþjóðir segi sig úr ráðinu, þannig að það verði í raun nánast valdalaus stofnun. Tillagan felur það í sér að Ísland fær heimild til að veiða 80 langreyðar og 80 hrefnur á ári næstu tíu árin. Samkvæmt tillögunni þurfa Japanar að draga verulega úr hvalveiðum sínum, en fá þó heimild til að veiða 400 hrefnur árlega næstu fimm árin, en 200 á ári eftir það. Þeir hafa veitt sjö til átta hundruð hrefnur árlega undanfarin ár. Í sjálfu sér er þetta ekki svo slæm útkoma fyrir íslenska hvalveiðimenn, því þótt Íslendingar hafi farið fram á að veiða 120 langreyðar og 80 hrefnur á fundi í janúar, þá kom fram á þeim fundi gagntillaga frá Bandaríkjunum, Nýja-Sjálandi, Svíþjóð og fleiri ríkjum um að Íslendingar fengju að veiða 60 langreyðar og 60 hrefnur. Frá sjónarhóli hvalveiðimanna á Íslandi er þó öllu verri sú hugmynd, sem nefnd er í tillögunni, að ráðið banni öll milliríkjaviðskipti með hvalkjöt. Sú hugmynd er að vísu innan hornklofa, sem þýðir að hún er einungis lögð fram til umræðu án þess vera eiginlegur hluti af tillögu formannanna. Það að þessi hugmynd sé engu að síður höfð með, bendir þó til þess að verulegur þrýstingur sé á að þetta nái fram að ganga. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins munu Bandaríkin hafa beitt sér mjög fyrir þessu, en í reynd myndi þetta þýða að hvalveiðar á Ísland misstu grundvöll sinn, því án útflutnings eru tekjumöguleikar litlir. Verði tillagan samþykkt á fundi ráðsins í júní verður alþjóðlega hvalveiðibannið, sem verið hefur við lýði í aldarfjórðung, í reynd numið úr gildi, í það minnsta hvað snertir hvalveiðiríkin Ísland, Noreg og Japan. Allar undanþágur til vísindaveiða eða möguleikar á andmælum verða úr sögunni, en í staðinn mega þau ríki, sem nú þegar veiða hvali, stunda takmarkaðar veiðar í söluskyni. Andstæðingar hvalveiða hafa gagnrýnt þessar tillögur harðlega. Þeir segja að í reynd sé verið að leyfa veiðar, sem hafi verið ólöglegar. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, vill taka sér tíma til að skoða þessar tillögur áður en svar verður gefið um afstöðu Íslands til þeirra. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira