Innlent

Nítján ráðgjafar fengu 732 milljónir króna

Nítján innlendar lögfræðiskrifstofur og ráðgjafarfyrirtæki seldu Glitni þjónustu fyrir meira en fimm milljónir króna á árinu 2009. Kostnaður skilanefndar og slitastjórnar Glitnis vegna innlendrar sérfræðiráðgjafar nam á árinu 732 milljónum króna, en í þeim tölum eru greiðslur til þeirra sem starfa í skilanefnd og slitastjórn bankans.

Kostnaður við kaup á sérfræðiþjónustu utan landsteinanna árið 2009 nam svo 2,6 milljörðum króna. Kostnaður skilanefndar og slitastjórnar Glitnis er um 200 milljónum meiri en kostnaður skilanefndar Kaupþings, samkvæmt svari sem blaðinu barst fyrir helgi. Innlendur kostnaður skilanefndar Glitnis var í fyrra 162 milljónum króna undir kostnaði skilanefndar Kaupþings, en kostnaður utan landsteinanna var 314 milljónum króna meiri en hjá Kaupþingi.- óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×