Skuldar ríkinu 26 milljarða 4. mars 2010 04:00 Gunnar Andersen
Viðskipti Fjármálaeftirlitið (FME) hefur tekið yfir rekstur VBS fjárfestingarbanka og skipað bankanum nýja stjórn til bráðabirgða að ósk stjórnar bankans. „Fjárhagsleg staða bankans er þröng, og hefur verið lengi," segir Jón Þórisson, forstjóri VBS. Uppgjöri síðasta árs er ekki lokið, en Jón segir að eiginfjárhlutfall bankans sé yfir lögbundnu átta prósenta lágmarki. Unnið hefur verið að endurskipulagningu bankans í nokkurn tíma. Jón segir að litið sé á yfirtöku FME sem áfanga í endurskipulagningunni, enda muni það auka trúverðugleika ferlisins. Fyrir tæplega einu ári fékk VBS 26 milljarða króna lán hjá Seðlabanka Íslands til sjö ára. Með því láni endurfjármagnaði bankinn skuld sína vegna endurhverfra viðskipta við Seðlabankann. Þá tók VBS lán hjá Seðlabankanum og lánaði áfram til viðskiptabankanna, eftir að lokað hafði verið fyrir lán til bankanna. Jón segir yfirtöku FME ekki hafa áhrif á það lán, öðruvísi en að hún tryggi frekar endurgreiðslur á láninu. Veð fyrir láninu séu í lánasafni VBS, reiðufé og fleiru. „Bankinn var kominn í fjárhags- og rekstrarvanda," segir Gunnar Andersen, forstjóri FME. Hann segir bókfært eigið fé jákvætt, en greiðslustaðan sé erfið. Heildarskuldir VBS eru í dag um 39 milljarðar króna, segir Gunnar. Tveir þriðju hlutar skuldarinnar eru 26 milljarða króna lán Seðlabankans og tekjur bankans ekki nægar til að standa undir skuldinni við Seðlabankann. Bráðabirgðastjórnin fer með völd stjórnar og hluthafafundar, og getur því skipt um stjórnendur telji hún þörf á því. Stjórnin starfar í þrjá mánuði í mesta lagi, og ákveður hvort bankinn starfi áfram eftir endurskipulagningu, eða leiti nauðarsamninga. - bj
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Þrír handteknir á Þingvöllum Innlent Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Fleiri fréttir Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Sjá meira