Undirbúin fyrir hið versta 31. maí 2010 02:00
Olíulekinn í Mexíkóflóa er versta umhverfisslys í sögu Bandaríkjanna, segir Carol Browner, orkumálaráðgjafi Hvíta hússins. Browner, sem spurð var út í málið af sjónvarpsstöðinni NBC í gær, sagði einnig að Bandaríkin væru búin undir hið versta ef ekki tekst að stöðva lekann fyrr en í ágúst. Olíufyrirtækið BP undirbýr nú nýjar aðferðir til að freista þess að stöðva lekann, en svokölluð „top kill"-aðferð, sem gekk út á að dæla þéttri leðju og úrgangsefnum niður í leka borholuna til að reyna að stöðva olíulekann, bar ekki árangur síðustu daga. Doug Suttles, framkvæmdastjóri BP, sagðist í gær ekki geta útskýrt nákvæmlega hvers vegna sú aðferð hefði brugðist. „Okkur hefur ekki tekist að stöðva lekann og því teljum við að nú sé kominn tími til að reyna næsta möguleika," sagði Suttles. Hann viðurkenndi þó einnig að það væri engin leið að tryggja að ný aðferð bæri árangur, en talið er að ný tilraun geti ekki hafist fyrr en eftir fjóra daga í fyrsta lagi. Vísindamenn telja að allt að 72 milljónir lítra af olíu hafi nú þegar lekið í sjóinn frá því að borpallur BP brann og sökk í apríl. Ellefu starfsmenn á borpallinum létust í slysinu.- kg
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira