Innlent

Þrjú útköll vegna elda í matarpottum

Frá Trönuhjalla í Kópavogi í kvöld. Mynd/Frikki
Frá Trönuhjalla í Kópavogi í kvöld. Mynd/Frikki
Talsverður erill hefur verið hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í dag og í kvöld sem hefur þurft að sinna þremur útköllum eftir tilkynningar um elda í matarpottum í íbúðarhúsum. Þá fóru sjúkraflutningamenn í yfir 30 sjúkraflutninga í dag.

Á sjöunda tímanum í kvöld fóru slökkviliðsmenn að fjölbýlishúsi við Trönuhjalla í Kópavogi. Þegar þeir komu á staðinn kom í ljós að eldurinn stafaði frá potti á eldavél. Mikill reykur var íbúðinni og barst hann í íbúð á hæðinni fyrir ofan. Íbúðirnar voru loftræstar og lauk aðgerðum slökkviliðs á um klukkustund.

Minniháttar eldur kviknaði í matarpotti í eldhúsi íbúðar á fjórðu hæð fjölbýlishúss í Hraunbæ í Árbæ rétt fyrir klukkan hjálfsjö í kvöld. Að sögn varðstjóra var lítill reykur í íbúðinni þegar slökkvilið kom á vettvang.

Þá fór reykskynjari í gang í íbúð í Arnarsmára í Kópavogi skömmu eftir klukkan fjögur í dag. Nágrannar sáu auk þess reyk berast út um glugga og hringdu eftir aðstoð. Dælubíll frá slökkviliðinu fór á staðinnn og þá kom í ljós eldurinn stafaði frá potti á eldavél í eldhúsi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×