Innlent

Rúmlega 1500 manns við tendrun Friðarsúlunnar

Það var margmenni í Viðey í gærkvöldi eins og sést á myndinni.
Það var margmenni í Viðey í gærkvöldi eins og sést á myndinni. Mynd/ Guðlaugur Ottesen Karlsson

Í tilefni af tendrun Friðarsúlunnar á 70 ára fæðingarafmæli John Lennon, bauð Yoko Ono gestum í fríar kvöldsiglingar til Viðeyjar í gærkvöldi. Elding flutti rúmlega 1500 manns yfir sundin en aldrei fyrr hefur Elding flutt jafn marga farþega til Viðeyjar á jafn skömmum tíma.

Að sögn áhafnarinnar gekk flutningurinn vel enda ást og friður aðalviðfangsefni kvöldsins og veðrið lék við gesti. Þó allt hafi gengið að óskum var Björgunarsveitin Ársæll til taks við Viðey.

Í Viðeyjarnausti var friðsæl og notaleg stemmning og gestir skrifuðu óskir sínar og hengdu á Óskatré Yoko Ono. Karítur Íslands syngu nokkur lög undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, bæði í Viðeyjarnausti og við Friðarsúluna.

Uppselt var í Viðeyjarstofu þar sem boðið var upp á kvölddagskránna Óður til friðar eða Lennon Tribute.

Dagskráin er til heiðurs John Lennon og samanstendur af kvöldverði í Viðeyjarstofu, lifandi tónlist og frásögnum tileinkuðum lífi John Lennon, Yoko Ono og lífsýn þeirra.

Hinn margverðlaunaði matreiðslumeistari, Friðgeir Ingi Eiríksson á Gallery Restaurant Hótel Holti, hefur sett saman þriggja rétta máltið með skírskotun í lagatexta og líf Lennon. Jón Ólafsson og hljómsveit flytja dagskránna í tónum og tali bæði á íslensku og ensku.

Óður til friðar verður í boði næstkomandi fimmtudag og eftirfarandi kvöld: 28. október, 11. nóvember, 25. nóvember og 8. desember.

Í kvöld býður Yoko Ono fría siglingu með Eldingu til Viðeyjar kl.19:00 frá Skarfabakka. Sú tímasetning helgast af því að ljósið í Friðarsúlunni er tendrað kl.19:30. Viðeyjarnaust verður opið með veitingasölu og gestir eru hvattir til að skrifa óskir sínar og hengja á Óskatré Yoko Ono. Siglt er til baka kl. 20:30 og 21:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×