Sport

Van der Vaart sendir Mourinho tóninn

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Rafael van der Vaart.
Rafael van der Vaart. Nordic Photos/Getty Images

Rafael Van der Vaart segir að langir og flóknir liðsfundir Jose Mourinho hafi verið drepleiðinlegir en hollenski landsliðsframherjinn er afar ánægður með einfaldleikann sem einkennir starfsumhverfi Harry Redknapp hjá Tottenham.

Van der Vaart, sem er 27 ára gamall, var keyptur frá Real Madrid á elleftu stundu áður en félagaskiptaglugganum var lokað í ágúst. Hann hefur náð sér vel á strik í framlínu Tottenham og er hann ekki í vafa um að léttleikinn sem einkenni Tottenham sé helsta ástæðan fyrir góðu gengi.

„Harry er mjög sérstakur maður, og mér líður eins og heima hjá mér hjá Tottenham, það er eins ég sé strákur að leika mér á götunni á ný. Það eru engar langar og leiðinlega ræður í búningsklefanum um taktík, eins og ég var vanur að heyra hjá Real Madrid. Það er tafla uppi á vegg í búningsklefanum en Harry skrifar aldrei neitt á hana - hann notar hana aldrei.

Það er mjög afslappað andrúmsloft fyrir leiki, og 20 mínútum áður en upphitun hefst er byrjunarliðið tilkynnt. Það eina sem Harry segir við mig fyrir leiki er að ég eigi að vera á hægri eða vinstri helming vallarins, og ég þurfi að leggja hart að mér, hafa gaman að því að spila, og skemmta stuðningsmönnum liðsins. Varnarlínan fær að vita hvaða leikmenn eru á þeirra ábyrgð í horn- og aukaspyrnum - og þá er allt upptalið," segir Van der Vaart í viðtali við dagblaðið The Sun á Englandi.

Hollendingurinn hefur skorað sjö mörk á tímabilinu en hann segir að margt af því sem liðið geri úti á vellinum sé tilviljunum háð. „Við höfum ekki æft hornspyrnur eða neitt slíkt. Gareth Bale skoraði gegn Blackburn með skalla eftir hornspyrnu frá mér. Þetta var alls ekki æft leikatriði, fyrirgjöfin var góð og skallinn var enn betri," bætti sóknarmaðurinn við.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×