Innlent

Vill lengri tíma til þess að ná eignum upp í skuldir

Helga Arnardóttir skrifar

Formaður efnahags- og skattanefndar, Helgi Hjörvar, ætlar að leggja fram frumvarp um lengingu fyrningar á fjármálagjörningum í líkingu við þá sem margir eignamenn gripu til í kringum hrunið. Það þýðir að stjórnvöld hafa lengri tíma til ógilda þá.

Fjölmargir eignamenn færðu húseignir sínar, bíla og aðrar eignir yfir á eiginkonur sínar og aðra fjölskyldumeðlimi eftir bankahrunið. Með því reyndu þeir að tryggja að lánadrottnar gætu ekki gengið að eigum þeirra.

Samkvæmt núgildandi lögum eru slíkir gjörningar riftanlegir í allt að tvö ár frá því þeir eru gerðir þar til ósk um gjaldþrotaskipti er sett fram. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur nú lagt fram frumvarp að þessi frestur verði lengdur um tvö ár og verði því fjögur ár.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×