Fleiri tapa en flugfélögin 21. apríl 2010 04:00 Flugfélagið í Dúbaí segist hafa tapað nærri átta milljörðum króna eftir að hafa fellt niður 250 flugferðir til og frá Evrópu.nordicphotos/AFP
Öskuskýin frá Íslandi hafa ekki aðeins komið illa niður á rekstri flugfélaga, heldur eru áhrifin af flugstöðvuninni farin að bitna á efnahagslífi víða um heim með margvíslegum hætti. Fyrir utan illa stadda blómaframleiðendur í Keníu, sem komist hafa í fréttir, má nefna að ananasframleiðendur í Gana sitja uppi með birgðir sem skemmast hratt og virðast ekki ætla að komast á áfangastað í bráðina. Áhrifin eru víðtæk, því með hverjum deginum sem líður verða allir þeir sem flytja ferskvöru til Evrópuríkja eða frá þeim af umtalsverðum viðskiptum. Útlitið er þó tvímælalaust verst fyrir flugfélögin. Samanlagt tap þeirra er talið nema nærri 25 milljörðum króna á dag. Siim Kallas, samgöngustjóri Evrópusambandsins, segir að áfallið fyrir flugrekendur sé nú þegar orðið verra en af árásum Al Kaída á Bandaríkin haustið 2001. Jafnvel hefur vaknað uggur um að efnahagslíf margra ríkja muni vart þola þetta högg beint ofan í heimskreppuna, sem þau eru vart farin að ná sér af enn. Sumir græða þó aldeilis á þessum hamförum, svo sem ferjurekendur í Skandinavíu, hóteleigendur sem rukka nærri hundrað þúsund krónur fyrir næturgistingu, eða leigubílstjórar sem næla sér í farþega sem greiða meira en hálfa milljón fyrir að láta keyra sig á milli landa.- gb
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Sjá meira