Enski boltinn

Grant: Gaman að gleðja 250 þúsund manns

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Avram Grant, stjóri Portsmouth, er nú þekktur fyrir flest annað en að sýna tilfinningar á fótboltavellinum. Á því varð breyting í dag.

Grant stormaði inn á völlinn eftir sigur Portsmouth á Southampton í bikarnum og brosti út að eyrum er hann klappaði fyrir stuðningsmönnum félagsins.

„Tilfinningarnar báru mig ofurliði í dag og þessi leikur var þrúginn tilfinningum. Ef við vinnum þá erum við að gleðja 250 þúsund manns. Þetta er það sem fótboltinn snýst um," sagði Grant glaður í bragði.

Portsmouth er sem kunnugt er á barmi gjaldþrots en Grant segir að það sé enginn uppgjafartónn í sér.

Hann ætli sér að berjast með félaginu fram í rauðan dauðann.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×