Herinn skaut á mótmælendur 29. apríl 2010 02:00 Einn hermaður féll fyrir byssuskoti, að því er virðist úr byssu félaga síns. fréttablaðið/AP
Taíland, AP Til átaka kom milli hers og mótmælenda rétt fyrir utan Bangkok í gær. Herinn skaut bæði gúmmíkúlum og venjulegum byssukúlum á mótmælendur. Að minnsta kosti átján manns særðust og einn hermaður lést, varð að því er virðist fyrir skoti úr byssu félaga síns. Meðan átökin stóðu sem hæst skutu hermennirnir á hóp annarra hermanna, sem komu akandi á móti þeim á vélhjólum. Að minnsta kosti fjögur vélhjólanna lentu í árekstri og einn hermaður var síðar borinn burt á börum með blæðandi sár á höfði. Svo virtist sem þetta hafi gerst fyrir slysni, en vitað er til þess að hópar hermanna hafa sýnt mótmælendum stuðning. Mótmælendurnir, sem eru rauðklæddir, hafa vikum saman staðið fyrir fjölmennum mótmælum í höfuðborginni og krefjast þess að Abhisit Vejjajiva forsætisráðherra og ríkisstjórn hans segi af sér. Abhisit komst til valda í kjölfar valdaráns hersins. Hann hefur sagst vonast til þess að friðsamleg lausn finnist á deilunni, en hefur þó ekki lagt fram neinar hugmyndir að lausn eftir að upp úr viðræðum hans við mótmælendur slitnaði.- gb
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira