Enski boltinn

John Terry: Þeir hefðu getað fengið víti en við líka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
John Terry, fyrirliði Chelsea.
John Terry, fyrirliði Chelsea. Mynd/AFP
John Terry, fyrirliði Chelsea, slapp með skrekkinn í 1-0 sigri liðsins á Bolton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Terry varði boltann með hendi á marklínu á 62. mínútu leiksins en Bolton fékk ekki víti.

„Þú ferð í gegn tímabil þar sem þú færð víti og færð ekki víti. Þeir hefðu getað fengið víti en við líka. Boltinn fór í brjóstkassann á mér að minnsta kosti fannst mér eins og boltinn fær í kassann á mér. Ég veit ekki hvernig þetta kom út í sjónvarpinu," sagði John Terry eftir leikinn.

„Þetta var allt annað en auðveldur leikur enda þurftum við að hafa mikið fyrir þeim Kevin Davies og Jack Wilshere allan tímann. Þeir bjuggu til vandræði fyrir okkur en við gerðum vel og það sem við þurfum að gera í þessum leik," sagði John Terry.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×