Clegg vill sjá hvað Cameron býður 8. maí 2010 06:00 Leiðtogarnir mættur þrisvar sinnum í sjónvarpskappræðum. Gordon Brown gefur David Cameron kost á að mynda stjórn með Nick Clegg, en segist reiðubúinn til að reyna stjórnarmyndun ef Cameron nær ekki árangri. Kjördæmamálið ræður væntanlega úrslitum í stjórnarmyndunarviðræðum.
Fréttaskýring: Verður kosningafyrirkomulaginu breytt? Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, er kominn í þá stöðu að geta valið með hverjum hann vill stjórna. David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hefur gefið loforð um að helstu kosningamálum frjálslyndra verði gert hátt undir höfði í stjórnarsáttmála samsteypustjórnar þeirra. Gordon Brown, forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, bíður álengdar og hefur einnig lofað frjálslyndum öllu fögru fari viðræður Camerons og Cleggs út um þúfur. Clegg hefur ekki viljað gefa nein svör, önnur en þau að sá flokkur sem flesta þingmenn fékk eigi rétt á að reyna fyrst að mynda stjórn. Hann bíður þess að heyra nánar í hverju tilboð Camerons er fólgið. Úrslitum ræður væntanlega hvor þeirra er tilbúinn til að ganga lengst í kjördæmamálinu, enda gæti breytt kosningafyrirkomulag gert langþráðan draum Frjálslyndra demókrata að veruleika: að verða einn af stóru flokkunum þremur í staðinn fyrir að sitja fastur í hlutverki þriðja flokksins sem engu ræður. Úrslit þingkosninganna á fimmtudag voru vonbrigði fyrir alla leiðtoga þessara þriggja flokka, en líklega þó mest fyrir Nick Clegg því fyrir aðeins fáum vikum leit út fyrir að honum myndi takast að breyta landslagi breskra stjórnmála með því að gera flokk sinn að jafnoka hinna tveggja. David Cameron getur að vísu fagnað því að hafa fengið flest atkvæði og um leið flest þingsæti, en hann náði ekki meirihluta eins og honum hafði þó verið spáð lengi vel. Gordon Brown forsætisráðherra harmar að hafa misst þingmeirihluta stjórnar sinnar, en gerir sér enn vonir um að geta haldið áfram að stjórna með Clegg sér við hlið. Samanlagður þingstyrkur þeirra dugar þó ekki til, og því þyrftu einhverjir smáflokkanna að koma til liðs við hugsanlega stjórn þeirra - og óvíst með öllu hvort af því yrði. Eins og fyrri daginn hafði kosningafyrirkomulagið veruleg áhrif á útkomu allra flokkanna. Þannig bættu frjálslyndir í reynd við sig einu prósenti atkvæða frá kosningunum 2005, en misstu samt fimm þingsæti. Íhaldsflokkurinn fékk ekki nema fjórum prósentum meira en í síðustu kosningum, en fékk samt 97 þingmönnum fleira en síðast, og Verkamannaflokkurinn missti 91 þingmann þótt hann hefði ekki tapað nema sex prósentum. Þetta skýrist af því að kosið er í einmenningskjördæmum, þar sem sá flokkur sem flest atkvæði fær í kjördæmi fær jafnframt þingsæti þess kjördæmis. Þessu fyrirkomulagi vill Frjálslyndi flokkurinn fyrir alla muni breyta. Þrátt fyrir fögur orð Camerons er þó ekki víst að Íhaldsflokkurinn sé í reynd tilbúinn til að ganga langt til móts við sjónarmið frjálslyndra í þessum efnum, því breytt kosningafyrirkomulag gæti sem hægast haft í för með sér að langt verði þangað til íhaldsmenn komist aftur í stjórn. Eftir kosningarnar á fimmtudag eiga flokkarnir ekki aðra kosti en að mynda samsteypustjórn eða minnihlutastjórn. Síðast var gerð tilraun til slíks árið 1974 þegar Harold Wilson stjórnaði minnihlutastjórn Verkamannaflokksins. Sú tilraun entist ekki nema fáeina mánuði, en þá þurfti að efna til kosninga á ný. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira