Hvorki Sólon né Árni kannast við söguskýringu Hannesar Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. febrúar 2010 15:15 Árni Tómasson var annar tveggja bankastjóra Búnaðarbankans. Hvorki hann né Sólon Sigurðsson kannast við að hafa haft samband við stjórnmálamenn vegna lánveitinga til Baugs.
Sólon Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Búnaðarbanka Íslands, segist ekki kannast við það að hafa haft að eigin frumkvæði samband við stjórnmálamenn til að kanna hvort það væri heppilegt að lána Baugi Group fjármuni til að fjárfesta í bresku verslanakeðjunni Arcadia vorið 2002. Hannes H. Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir í færslu á vefsvæði sínu á Pressunni að Landsbankamenn hefðu ákveðið án þess að „bera það undir kóng og prest að veita Baugi ekki lán í þetta ævintýri. Búnaðarbankamenn höfðu að eigin frumkvæði samband við forystumenn í stjórnmálum og fengu þau eðlilegu skilaboð að fara sér hægt, á meðan verið væri að selja bankana. Þess vegna áttu Baugsfeðgar erfitt með að útvega sér fé úr íslensku bönkunum í Arcadia-kaupin, en ekki vegna einhverrar vonsku Davíðs Oddssonar í þeirra garð," segir Hannes í grein sinni, en þetta mun hafa átt sér stað vorið 2002. Sólon Sigurðsson, sem þá var annar af tveimur bankastjórum Búnaðarbankans, segir þessa sögukýringu Hannesar ranga, a.m.k að því er sig snerti. „Þetta kannast ég bara ekki við. Ég hef oft verið spurður að þessu, hvort að Davíð hafi reynt að hafa áhrif á mig í sambandi við Arcadia. Bæði af erlendum og innlendum blaðamönnum. Ég hef alltaf svarað því eins; hann reyndi aldrei að hafa nein áhrif á mig í sambandi við útlán, aldrei. Við það stend ég. Ég man heldur ekki eftir því að hafa leitað til neinna stjórnmálamanna um það. Það er af og frá. Þannig að ég kannast ekki við þetta," segir Sólon. Árni Tómasson, var bankastjóri Búnaðarbankans með Sóloni á umræddum tíma. „Ég hafði ekki samband við stjórnmálamenn til að bera undir þá lánveitingu til Baugs. Það var heldur ekki haft neitt samband við mig af stjórnmálamönnum út af þessu," segir Árni. Aðspurður segist hann ekki muna hvort lán til Baugs hafi verið sérstaklega rætt innan bankastjórnar Búnaðarbankans.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Sjá meira