Hreyfingin: Mótmælendurnir voru að sinna skyldu sinni 22. janúar 2010 10:47 Þingmenn Hreyfingarinnar. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Hreyfingin vill að Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, dragi til baka kærur gegn hópi fólks sem ruddist inn í Alþingishúsið í desember 2008. Hópurinn hafi einungis verið að sinna sjálfsagðri borgaralegri skyldu sinni. Mál níu manna sem ákærðir hafa verið vegna mótmælanna var þingfest í gærmorgun. Átök brutust út annars vegar á milli einstaklinga úr hópi fólks sem réðst inn í húsið og upp á áhorfendapalla og hins vegar þingvarða og lögreglumanna. Fimm þingverðir slösuðust í þessum átökum. Einn þeirra hlaut áverka sem leiddu til örorku. Níumenningarnir hafa verið ákærðir fyrir brot á grundvelli 100. grein hegningarlaganna eða fyrir árás gegn Alþingi. Alþingi í desember 2008.Mynd/Arnþór Birgisson „Grasrót Hreyfingarinnar mótmælir því harðlega hvernig stórfurðuleg forgangsröðun kerfisins birtist nú þjóðinni í ákærum gagnvart smáum hópi borgara sem var nóg boðið, steig fram og vildi koma á framfæri óánægju sinni gagnvart ástandinu. Hópi borgara sem eins og við flest, eru þolendur gríðarlegrar vanrækslu framkvæmda- og löggjafavaldsins gagnvart lögbundnu eftirlitshlutverki sínu," segir í tilkynningu frá Hreyfingunni. Þar segir jafnframt að á sama tíma hafi stórglæpamenn og gerendur hrunsins enn fulla friðhelgi í samfélaginu. Þeir sitji enn með fullt forræði yfir eigum sínum og starfi í flestum tilfellum áfram í sömu störfum og áður. „Það er skýlaus krafa okkar að skrifstofustjóri Alþingis, Helgi Bernódusson, dragi umsvifalaust kærur gegn þessu fólki til baka. Þau voru að sinna sjálfsagðri borgaralegri skyldu sinni."
Tengdar fréttir Íhugar að játa til að spara skattfé Líftæknifræðingurinn Kolbeinn Aðalsteinsson er einn af níu sem hafa verið ákærðir fyrir árás á Alþingi en málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Sjálfur er Kolbeinn búsettur á Siglufirði og frétti fyrst af því að hann væri ákærður þegar hann las fréttirnar á vefnum eftir vinnu í kvöld. 20. janúar 2010 21:46 Skrifstofa þings kaus að kæra fyrir aðför Ríkissaksóknari segist ekki hafa heimild til að láta mál niður falla þar sem sjö manns hafa særst í átökum. Hann bendir á að kæran gegn ellefu manns, sem réðust inn í Alþingishúsið með þeim afleiðingum að lögreglumenn og fleiri særðust, komi til sín eftir rannsókn lögreglu á kæru skrifstofustjóra Alþingis. Það hafi verið Alþingi sem ákvað að kæra samkvæmt 100. grein hegningarlaga, sem kveður á um eins árs lágmarksfangelsisvist, verði hin ákærðu dæmd sek. 22. janúar 2010 02:30 Hörður Torfa: Ákærurnar eins og olía á eld Hörður Torfason einn af upphafsmönnum Búsáhaldabyltingarinnar segir símann hafa verið rauðglóandi í morgun eftir að fréttir bárust af því að mótmælendurnir níu yrðu ákærðir. Hann segir forgangsröðun Ríkissaksóknara kolranga. 21. janúar 2010 12:13 Ríkissaksóknari hefur ekki ákæruvald í efnahagsbrotamálum Ríkissaksóknari segist ekki hafa ákæruvald í efnahagsbrotamálum og furðar sig á öllu tali um ranga forgangsröðun í tengslum við ákæruna gegn fólki sem mótmælti við Alþingishúsið í desember 2008. Hörður Torfason, tónlistarmaður og mótmælandi, er einn þeirra sem hefur gagnrýnt Ríkissaksóknara. 21. janúar 2010 12:54 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira
Íhugar að játa til að spara skattfé Líftæknifræðingurinn Kolbeinn Aðalsteinsson er einn af níu sem hafa verið ákærðir fyrir árás á Alþingi en málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Sjálfur er Kolbeinn búsettur á Siglufirði og frétti fyrst af því að hann væri ákærður þegar hann las fréttirnar á vefnum eftir vinnu í kvöld. 20. janúar 2010 21:46
Skrifstofa þings kaus að kæra fyrir aðför Ríkissaksóknari segist ekki hafa heimild til að láta mál niður falla þar sem sjö manns hafa særst í átökum. Hann bendir á að kæran gegn ellefu manns, sem réðust inn í Alþingishúsið með þeim afleiðingum að lögreglumenn og fleiri særðust, komi til sín eftir rannsókn lögreglu á kæru skrifstofustjóra Alþingis. Það hafi verið Alþingi sem ákvað að kæra samkvæmt 100. grein hegningarlaga, sem kveður á um eins árs lágmarksfangelsisvist, verði hin ákærðu dæmd sek. 22. janúar 2010 02:30
Hörður Torfa: Ákærurnar eins og olía á eld Hörður Torfason einn af upphafsmönnum Búsáhaldabyltingarinnar segir símann hafa verið rauðglóandi í morgun eftir að fréttir bárust af því að mótmælendurnir níu yrðu ákærðir. Hann segir forgangsröðun Ríkissaksóknara kolranga. 21. janúar 2010 12:13
Ríkissaksóknari hefur ekki ákæruvald í efnahagsbrotamálum Ríkissaksóknari segist ekki hafa ákæruvald í efnahagsbrotamálum og furðar sig á öllu tali um ranga forgangsröðun í tengslum við ákæruna gegn fólki sem mótmælti við Alþingishúsið í desember 2008. Hörður Torfason, tónlistarmaður og mótmælandi, er einn þeirra sem hefur gagnrýnt Ríkissaksóknara. 21. janúar 2010 12:54