Innlent

Ögmundur hvetur til sátta

Ögmundur Jónasson.
Ögmundur Jónasson. Mynd/Stefán Karlsson
„Nú reynir á að við fylkjum liði. Höldum áfram að vinna einsog gert hefur verið," segir þingmaðurinn Ögmundur Jónasson um leið og hann hvetur til sátta vegna deilna innan VG sem spruttu upp eftir forval flokksins í Reykjavík í byrjun mánaðarins.

Frambjóðendur í forvalinu fengu misvísandi upplýsingar um túlkun reglna frá kjörstjórn. Sumum þeirra var sagt að þeim væri leyfilegt að fara á milli með prentaða kjörseðla heim til fólks og koma þeim síðan til skila. Þetta kærði borgarfulltrúinn Þorleifur Gunnlaugsson til kjörstjórnar. Í lok síðustu viku sagði kjörstjórnin, sem jafnframt átti að stilla upp á lista VG fyrir komandi kosningar, af sér vegna málsins.

Ögmundur segir í pistli á heimasíðu sinni að sitt sýnist hverjum um uppröðun á lista flokkanna sem fer fram þessa dagana. „Það tekur á þegar félagar deila. Svo lýkur því. Einsog nú í Reykjavík. Þar hafnaði kröftug ung kona, Sóley Tómasdóttir í fyrsta sæti. Í öðru sæti minn góði vinur, Þorleifur Gunnlaugsson," segir Ögmundur. Nú reyni á að flokksmenn standi saman. „Nú segjum við öll, stuðningsmenn VG í Reykjavík: Áfram. Fram til sigurs!"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×