Enski boltinn

Owen frá í nokkrar vikur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, býst ekki við því að geta nýtt krafta Michael Owen næstu vikurnar eftir að framherjinn tognaði aftan í læri í úrslitum deildarbikarsins í gær.

Það var fyrsti leikur Owen í byrjunarliði í rúman mánuð. Hann þakkaði fyrir með því að skora en fór síðan meiddur af velli fyrir hlé.

„Hann hefur ekki spilað mikið upp á síðkastið og völlurinn var eflaust ekki góður fyrir hann. Maður velur liðið áður en maður veit ástand vallarins. Það hentar ekki Michael að spila á svona þungum velli. Við greiddum það dýru verði," sagði Ferguson.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×