Ríkisendurskoðandi hafnar bullbrigslum 12. október 2010 04:00 Á sama tíma og lagt var fram fjárlagafrumvarp sem fól í sér mikinn niðurskurð á kostnaði sérfræðilækna tók Álfheiður Ingadóttir við af Ögmundi Jónassyni sem heilbrigðisráðherra. Fréttablaðið/Stefán
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi gerir athugasemdir við ummæli Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, í Fréttablaðinu á laugardag. Þar lýsti Álfheiður ummælum Ríkisendurskoðunar í skýrslu um framkvæmd fjárlaga yfirstandi árs sem „bulli“. Í skýrslunni segir Ríkisendurskoðun að óraunæf krafa um sparnað hafi verið sett á Sjúkratryggingar Íslands. Meðal annars hafi skort samvinnu sérfræðilækna um verulega lækkun gjaldskrár og leiðsögn heilbrigðisráðuneytisins til að tryggja að tilætlaður sparnaður næðist. Álfheiður benti á að það hafi verið Alþingi sem tók ákvörðun um sparnaðinn en ekki heilbrigðisráðuneytið. „Þótt Alþingi fari formlega með fjárstjórnarvald ríkisins hafa ríkisstjórn og ráðherrar frumkvæði að gerð fjárlaga. Þeir bera ábyrgð á þeim tillögum sem lagðar eru fyrir þingið í formi fjárlagafrumvarps,“ segir Sveinn Arason. Ríkisendurskoðandi bendir á að í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 hafi það verið heilbrigðisráðuneytið sem lagði til að fjárveiting vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérfræðilækna yrði 4,3 milljarðar króna, eða 29 prósentum minna en á árinu 2009 þegar kostnaðurinn hafi orðið rúmir sex milljarðar. Þessa tillögu ráðuneytisins hafi Alþingi samþykkt. Nú stefni í að kostnaður ársins verði um 5,9 milljarðar króna eða 37 prósent umfram fjárlög. „Það er rétt hjá fyrrverandi heilbrigðisráðherra að formlega var það Alþingi sem gerði sparnaðarkröfuna í fjárlögum ársins 2010. Engu að síður lagði heilbrigðisráðuneytið grunn að kröfunni og tillögu um hana í fjárlagafrumvarpinu. Þá ber það ábyrgð á framkvæmd kröfunnar eftir að þingið lagði blessun sína yfir hana,“ segir Sveinn og ítrekar það sem kemur fram í skýrslunni, að ráðuneytinu hafi verið fullljóst við fjárlagagerð haustið 2009 að sparnaðarkrafan næðist ekki fram nema sérfræðilæknar féllust á að lækka gjaldskrá sína mjög mikið. Því hafi verið óraunhæft að setja kröfuna fram, auk þess sem skort hafi skýra stefnumótun og leiðsögn af hálfu ráðuneytisins. „Í ljósi þessa er Alþingi í skýrslunni hvatt til að fara vandlega yfir forsendur niðurskurðartillagna í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011 og kanna hvort þær séu raunhæfar. Ég vil nota tækifærið og árétta þessa hvatningu hér,“ segir Sveinn. Ögmundur Jónasson, sem var heilbrigðisráðherra fram að þeim tíma að fjárlagafrumvarpið var lagt fram, segir frumvarpið ekki hafa verið frágengið fyrr en með samþykkt Alþingis í desember. gar@frettabladidi.is
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Sjá meira