Enski boltinn

Chelsea sendi sálfræðing til Ashley Cole

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Forráðamenn Chelsea hafa verulegar áhyggjur af andlegu ástandi Ashley Cole en hegðun hans er sögð hafa verið afar furðuleg síðustu daga. Skal svo em engan undra þar sem hjónaband hans er runnið út í sandinn og hann er forsíðuefni slúðurblaðanna dag eftir dag.

Svo miklar áhyggjur hefur Roman Abramovich, eigandi Chelsea, af Cole að hann sendi sálfræðing til Frakklands þar sem Cole er í meðferð vegna ökklameiðsla.

Cole er búinn að vera þungur síðustu daga og jafnvel ekki nennt að raka sig dögum saman.

Þegar sálfræðingurinn mætti á svæðið hressti hann sig við, rakaði sig og var allur hressari. Er hermt að hann hafi viljað spila sig sem hressastan fyrir sálfræðinginn.

Cole verður í Frakklandi líklega út næstu viku og hann á von á heimsókn frá eiginkonunni á næstu dögum. Hún ætlar að gefa honum 15 mínútur af tíma sínum.

 





 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×