Erlent

Embættismenn gengu of langt

Benedikt páfi
Benedikt páfi
Utanríkisráðuneyti Bretlands hefur sent Benedikt sextánda páfa afsökunarbréf eftir að minnisblað úr ráðuneytinu, sem ekki var ætlað til birtingar, komst í fjölmiðla.

Þar eru embættismenn ráðuneytisins að gantast með að páfinn gæti til dæmis opnað fóstureyðingarstofu, gift samkynhneigt par eða kynnt nýja smokkategund þegar hann kemur í fjögurra daga heimsókn til Bretlands í september.

Ráðuneytið fordæmir skjalið og segir það merki um slæma dómgreind, kjánaskap og virðingarleysi. Einn starfsmaður ráðuneytisins hefur verið settur í önnur verkefni.- gb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×