Segir draugagang í gamla hersjúkrahúsinu á varnasvæðinu Valur Grettisson skrifar 22. febrúar 2010 12:47 Ásbrú. Hersjúkrahúsið er bláleitt og fyrir miðju á myndinni. „
Við höfum fengið tvær fyrirspurnir en engar formlegar tilkynningar," segir Magnús Skarphéðinsson forseti Sálarrannsóknarfélags Reykjavíkur og sérfræðingur í yfirskilvitslegum fyrirbærum, en tveir aðilar hafa sett sig í samband við hann vegna draugagangs á hersjúkrahúsinu að Ásbrú í Reykjanesbæ. Athafnamaðurinn Róbert Wessman hyggst breyta sjúkrahúsinu í lúxus-sjúkrahús fyrir útlendinga en á spítalanum verða framkvæmdar liðaskipta- og offituaðgerðir. Þarna hafa verið hlutir á hreyfingu og greinilegur umgangur," segir Magnús um gamla herspítalann. Hann segir tilvikið skráð hjá Sálarrannsóknarfélaginu. Um er að ræða eitt herbergi sem virðist áberandi reimt í. Að sögn Magnúsar hefur hann ekki kannað aðstæður sjálfur og því þekki hann ekki vel til hvar nákvæmlega í húsinu draugagangurinn á sér stað. Magnús Skarphéðinsson hefur fengið tvær fyrirspurnir vegna draugagangs á Vallarheiðinni. „Mín ágiskun er sú, þar sem þetta var hersjúkrahús, að í þessu húsi hafi margt gerst sem varðar líf og dauða margra einstaklinga. Reimleikinn tengist greinilega fólki sem hefur látið lífið þarna," segir Magnús. Aðspurður segist Magnús fá tvær til þrjár tilkynningar á viku um draugagang. Hann segir raunveruleg tilvik komi í það minnsta á tveggja vikna fresti. „Í síðustu viku hringdi kona og kom hingað til okkar. Það var mikill umgangur í húsinu hennar auk þess sem það var bankað á útidyrnar," segir Magnús en raunir konunnar voru talsverðar þar sem draugurinn virðist hafa lagt hendur á hana auk þess sem hann dró gluggatjöldin frá í tíma og ótíma. „Hún var að horfa á sjónvarpið þegar það var skyndilega tekið utan um kinnarnar á henni, ekkert ólíkt og fullorðið fólk gerir við börn," segir Magnús um drauginn en eins og oft áður þá er tilgangur andans óljós.Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar byrjar á umfangsmiklum endurbótum á gamla hersjúkrahúsinu eftir nokkrar vikur. Iceland Healthcare, sem er í eigu Róberts Wessman, mun síðan leigja það undir sjúkrahús fyrir útlendinga. Stefnt er að því að starfsemin hefjist 2011.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Sjá meira