Reikna með verkföllum í mars 24. febrúar 2010 04:00 Atkvæðagreiðsla um boðun verkfalls flugumferðarstjóra kemur í kjölfar skammvinns verkfalls flugvirkja hjá Icelandair.Fréttablaðið/Heiða
Félagsmenn í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) samþykktu á aðalfundi félagsins á mánudagskvöld að fela stjórn og trúnaðarráði félagsins að hefja undirbúning atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls. Í gærkvöldi útfærði svo trúnaðarráð félagsins atkvæðagreiðsluna nánar, það er hvers konar verkfallsaðgerðir félagsmenn fá um að velja. Nokkra daga tekur að undirbúa atkvæðagreiðslu og greiða atkvæði, auk þess sem gefa verður lögbundinn fyrirvara, segir Ottó Garðar Eiríksson, formaður félagsins. Hann telur líklegt að lagt verði til að verkfall verði boðað fyrri hluta marsmánaðar. Spurður hvort um fleiri en eitt tímabundið verkfall verði að ræða, eins og oft hefur verið hjá flugumferðarstjórum, segir Ottó það líklegt. Samningur FÍF við Samtök atvinnulífsins og Flugstoðir rann út í lok október síðastliðnum. Loftur Jóhannsson, formaður samninganefndar félagsins, segir að markmið flugumferðarstjóra sé að ná fram launahækkun í takt við aðrar stéttir í fluggeiranum. Byrjunarlaun flugumferðarstjóra eru nú rúmlega 300 þúsund krónur á mánuði. Með vaktaálagi fara byrjunarlaunin nærri 400 þúsund krónum á mánuði. Launin hækka með starfsaldri og lífaldri. Þannig gæti 59 ára flugumferðarstjóri verið með um 570 þúsund krónur í laun fyrir dagvinnu, segir Loftur. Hann bendir á að laun flugumferðarstjóra í nágrannalöndunum séu á bilinu 70 til 160 prósentum hærri en hér á landi. - bj
Mest lesið Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Innlent Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Innlent Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir Innlent Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Erlent Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Erlent Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Erlent Íbúar Ártúnsholts hrósa sigri gegn borginni - í bili Innlent Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Erlent Fyrsta trampólínlægðin væntanleg á morgun Innlent „Skoðun mín skiptir ekki máli“ Innlent Fleiri fréttir „Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Skæð fuglaflensa greindist á Norðurlandi Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Þingmenn ræða stjórnlausa veðmálastarfsemi: Íslendingar Evrópumeistarar Stórt framfaraskref að færa Blóðbankann í Kringluna Austurstræti orðið að göngugötu Íbúar Ártúnsholts hrósa sigri gegn borginni - í bili Fyrsta trampólínlægðin væntanleg á morgun Dóttirin fær einungis að mæta einu sinni í viku í frístund Drónar í Danaveldi og Blóðbankinn opnar í Kringlunni „Skoðun mín skiptir ekki máli“ Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir 3,2 stiga skjálfti í Mýrdalsjökli Óskaði aðstoðar með gríðarstóran hníf Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Enska verði orðin ráðandi í atvinnulífi um miðja öld Heiðra Íslendinga með því að gera 17. júní að fánadegi Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Skrítið að vita af ósprunginni handsprengju í næstu götu Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Löng bið Haraldar, umdeild kynjafræði og íslenska í útrýmingarhættu Borgin leggur bílstjórum línurnar Rafmagn aftur komið á í öllum hverfum Hélt ræðu gráti nær Gripnir glóðvolgir með íslensk lundaegg í Hollandi Stúdentar leggjast gegn sameiningunni Ekki slys á gangandi vegfaranda í „hættulegum beygjuvösum“ í tuttugu ár Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Nýtt stjórnsýslustig framhaldsskóla: „Þetta er eins og vont trúðaleikrit“ Sjá meira