Icelandair bætir flugum við vetraráætlun 30. júní 2010 10:53 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Áætlun Icelandair í vetur verður um 14% umfangsmeiri en hún var síðasta vetur. Icelandair mun fljúga til alls 15 áfangastaða austan hafs og vestan, að því er fram kemur í tilkynningu frá flugfélaginu. Að meðaltali verða 82 flug frá Íslandi í viku á tímabilinu frá nóvember og út mars, eða 10 fleiri en á síðasta vetri. Á fimm mánaða tímabili, í nóvember, desember, janúar og febrúar og mars verður flugum fjölgað um 200 í heild. Flogið verður til 11 borga í Evrópu og fjögurra borga í Norður-Ameríku. Í tilkynningunni segir að helsta breytingin frá fyrra vetri er að flugferðum er fjölgað bæði til borga Evrópu, svo sem Parísar, Frankfurt, Amsterdam og Kaupmannahafnar og einnig til Seattle, New York og Orlando í Bandaríkjunum. Að auki verður flogið til Helsinki fram yfir áramót, sem er 2 mánuðum lengur en undanfarin ár. Að lokum verður flogið til Munchen í Þýskalandi frá lokum janúar fram til mars, en það er í fyrsta sinn sem félagið flýgur til Munchen á þessum tíma árs. Einnig er flug til fjölmargra áfangastaða aukið bæði nú haust og næsta vor, þ.e. í október og apríl og maí til þess að lengja ferðamannatímann. „Þrátt fyrir miklar sveiflur í rekstrarumhverfinu er útlitið nokkuð bjart og við erum að auka töluvert við framboðið milli ára", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. „Eftir að efnahags- og gengishrunið á árinu 2008 stöðvaði nánast utanferðir Íslendinga breyttum við áherslum hratt og náðum að auka mjög hlutfall erlendra ferðamanna í vélum okkar í staðinn. Eldgosið í vor dró hins vegar mjög úr bókunum þeirra tímabundið en Norður-Atlantshafsmarkaðurinn hefur verið sterkur. Nú sjáum við að bókanir Íslendinga til útlanda eru að aukast og bókanir til landsins í haust lofa góðu í kjölfar kynningarátaksins Inspired by Iceland."
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Nýjustu tölur í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Sjá meira