Hreyfingin fordæmir viðbrögð stjórnvalda 30. júní 2010 15:47 Þingmenn Hreyfingarinnar.
Þingmenn Hreyfingarinnar fordæma viðbrögð Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlistins og ríkisstjórnarinnar við niðurstöðu Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar lána. Þingmennirnir segja löngu orðið tímabært að tímabært að almenningur njóti vafans ef einhver er. Að þeirra mati hefur þjónkun stjórnvalda við fjármálakerfið nú endanlega farið út fyrir öll velsæmismörk, líkt og það er orðað í tilkynningu. Samningsvextir gengistryggðra lána verða ekki látnir gilda við uppgjör þeirra, heldur hagstæðustu vextir Seðlabankans, samkvæmt tilmælum sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn sendu fjármálafyrirtækjum í morgun. Í flestum tilfellum munu vextir, og þar með staða lánsins, ríflega tvöfaldast frá því sem margir lántakendur höfðu vonast eftir. „Síðan dómurinn féll hafa margir helstu lögspekingar landsins sagt opinberlega að niðurstaða hæstaréttar sé skýr, gengistryggingin sé ólögleg og upphaflegir samningsvextir standi. Þingmenn Hreyfingarinnar taka undir það mat og fá ekki séð að óvissan sé í líkingu við það sem fjármálafyrirtæki og stjórnvöld vilja meina," segir í tilkynningu þingflokksins. Þar segir jafnframt: „Trúverðugir málsvarar almennings tala einum rómi í þessu máli og gagnrýna stjórnvöld harðlega því ljóst má vera að umrædd tilmæli standast varla lagalega skoðun og eru jafnvel brot á stjórnarskrá. Þjónkun stjórnvalda við fjármálakerfið hefur nú endanlega farið út fyrir öll velsæmismörk."
Tengdar fréttir Dómstólar eiga síðasta orðið Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna tilmæla Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um gengistryggð lán segir að þótt tímabundin óvissa ríki um endanlega niðurstöðu dómstóla sé mikilvægt að stöðuleiki á fjármálamarkaði verði áfram tryggður. Ríkisstjórnin virðir sjálfstæði Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og ber fullt traust til þessara stofnana við að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Dómstólar eigi þó síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna lánanna. 30. júní 2010 12:54 Framsóknarmenn vilja nefndarfund Þingmennirnir Birkir Jón Jónsson og Eygló Harðardóttir, nefndarmenn í efnahags- og skattanefnd og viðskiptanefnd, hafa óskað eftir því að nefndirnar fundi sameiginlega hið fyrsta til að fara yfir tilmæli sem Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið hafa sent fjármálafyrirtækjum vegna lánasamninga sem innihalda gengisviðmið gagnvart erlendri mynt. 30. júní 2010 13:48 Tilmælin eiga að skapa festu í viðskiptum og traustu fjármálakerfi Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segir að tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans til fjármálafyrirtækja vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða sé ætlað að skapa festu í viðskiptum og stuðla að öruggu fjármálakerfi. Með tilmælunum séu FME og Seðlabankinn að sinna þeirri lagaskyldu sem á þeim hvílir. Hann segir brýna almannahagsmuni krefjast þess að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið setji fram almennar leikreglur sem varðveiti stöðugleika á meðan greitt sé úr réttaróvissu. 30. júní 2010 10:22 Lilja Mósesdóttir: Það á allt eftir að loga í málaferlum „Það á allt eftir að loga í málaferlum,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, um tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um að lánastofnanir eigi að fylgja óverðtryggðum vöxtum Seðlabankans, í stað samningsvaxta gengistryggðra lánasamninga. 30. júní 2010 11:00 Samningar verði endurreiknaðir miðað við vexti Seðlabankans Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa sent fjármálafyrirtækjum þau tilmæli að þeim beri að endurreikna þau lán sem innihalda gengistryggingarákvæði sem eru óskuldbindandi samanber dóma Hæstaréttar. Ekki verði miðað við upphaflega vexti lánanna sem í mörgum tilvikum voru í kringum þrjú prósent, heldur vexti sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum sem nú gilda á lánamarkaði. Á vef Seðlabanka Íslands kemur fram að lægstu vextir á almennum óverðtryggðum útlánum er um 8,25% en á verðtryggðum lánum eru vextirnir 4,80%. 30. júní 2010 09:07 Segir Seðlabankann og FME hvetja til lögbrota „Ég fæ ekki betur séð en að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið séu að hvetja til lögbrota," segir Marinó G. Njálsson, hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, um tilmæli sem Seðlabankinn og FME beina til fjármálafyrirtækja vegna gengistryggðra lánasamninga og var tilkynnt um í morgun. 30. júní 2010 10:12 Segja seðlabankann og FME hafa lýst yfir stríði Samtök lánþega segja í yfirlýsingu að Seðlabanki og FME hafi í raun lýst yfir stríði á hendur almennum borgurum þessa lands með tilmælum sínum sem eftirlitsstofnanirnar tilkynntu í morgun. Þar var þeim tilmælum beint til fjármálafyrirtækja að fylgja vöxtum seðlabankans í stað þess að reikna úr lánin út frá samningsvöxtum. Vextir seðlabankans eru 8,25 prósent. 30. júní 2010 11:24 Segja ákvörðun FME og Seðlabankans vonbrigði Neytendasamtökin segja tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins vonbrigði. Neytendasamtökin hafa áður gefið út yfirlýsingu þar sem þau sögðu að samningsvextir ættu að standa þrátt fyrir að Hæstiréttur hefur dæmt gengistryggingu króna við erlendan gjaldmiðil ólögmæta. 30. júní 2010 13:48 Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Innlent Fleiri fréttir Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sjá meira
Dómstólar eiga síðasta orðið Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna tilmæla Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um gengistryggð lán segir að þótt tímabundin óvissa ríki um endanlega niðurstöðu dómstóla sé mikilvægt að stöðuleiki á fjármálamarkaði verði áfram tryggður. Ríkisstjórnin virðir sjálfstæði Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og ber fullt traust til þessara stofnana við að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Dómstólar eigi þó síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna lánanna. 30. júní 2010 12:54
Framsóknarmenn vilja nefndarfund Þingmennirnir Birkir Jón Jónsson og Eygló Harðardóttir, nefndarmenn í efnahags- og skattanefnd og viðskiptanefnd, hafa óskað eftir því að nefndirnar fundi sameiginlega hið fyrsta til að fara yfir tilmæli sem Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið hafa sent fjármálafyrirtækjum vegna lánasamninga sem innihalda gengisviðmið gagnvart erlendri mynt. 30. júní 2010 13:48
Tilmælin eiga að skapa festu í viðskiptum og traustu fjármálakerfi Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segir að tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans til fjármálafyrirtækja vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða sé ætlað að skapa festu í viðskiptum og stuðla að öruggu fjármálakerfi. Með tilmælunum séu FME og Seðlabankinn að sinna þeirri lagaskyldu sem á þeim hvílir. Hann segir brýna almannahagsmuni krefjast þess að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið setji fram almennar leikreglur sem varðveiti stöðugleika á meðan greitt sé úr réttaróvissu. 30. júní 2010 10:22
Lilja Mósesdóttir: Það á allt eftir að loga í málaferlum „Það á allt eftir að loga í málaferlum,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, um tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um að lánastofnanir eigi að fylgja óverðtryggðum vöxtum Seðlabankans, í stað samningsvaxta gengistryggðra lánasamninga. 30. júní 2010 11:00
Samningar verði endurreiknaðir miðað við vexti Seðlabankans Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa sent fjármálafyrirtækjum þau tilmæli að þeim beri að endurreikna þau lán sem innihalda gengistryggingarákvæði sem eru óskuldbindandi samanber dóma Hæstaréttar. Ekki verði miðað við upphaflega vexti lánanna sem í mörgum tilvikum voru í kringum þrjú prósent, heldur vexti sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum sem nú gilda á lánamarkaði. Á vef Seðlabanka Íslands kemur fram að lægstu vextir á almennum óverðtryggðum útlánum er um 8,25% en á verðtryggðum lánum eru vextirnir 4,80%. 30. júní 2010 09:07
Segir Seðlabankann og FME hvetja til lögbrota „Ég fæ ekki betur séð en að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið séu að hvetja til lögbrota," segir Marinó G. Njálsson, hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, um tilmæli sem Seðlabankinn og FME beina til fjármálafyrirtækja vegna gengistryggðra lánasamninga og var tilkynnt um í morgun. 30. júní 2010 10:12
Segja seðlabankann og FME hafa lýst yfir stríði Samtök lánþega segja í yfirlýsingu að Seðlabanki og FME hafi í raun lýst yfir stríði á hendur almennum borgurum þessa lands með tilmælum sínum sem eftirlitsstofnanirnar tilkynntu í morgun. Þar var þeim tilmælum beint til fjármálafyrirtækja að fylgja vöxtum seðlabankans í stað þess að reikna úr lánin út frá samningsvöxtum. Vextir seðlabankans eru 8,25 prósent. 30. júní 2010 11:24
Segja ákvörðun FME og Seðlabankans vonbrigði Neytendasamtökin segja tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins vonbrigði. Neytendasamtökin hafa áður gefið út yfirlýsingu þar sem þau sögðu að samningsvextir ættu að standa þrátt fyrir að Hæstiréttur hefur dæmt gengistryggingu króna við erlendan gjaldmiðil ólögmæta. 30. júní 2010 13:48