Framsóknarmenn vilja nefndarfund 30. júní 2010 13:48 Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins. Mynd/GVA
Þingmennirnir Birkir Jón Jónsson og Eygló Harðardóttir, nefndarmenn í efnahags- og skattanefnd og viðskiptanefnd, hafa óskað eftir því að nefndirnar fundi sameiginlega hið fyrsta til að fara yfir tilmæli sem Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið hafa sent fjármálafyrirtækjum vegna lánasamninga sem innihalda gengisviðmið gagnvart erlendri mynt. Óskað er eftir því að eftirtaldir aðilar komi fyrir nefndirnar: Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra, Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Gunnar Andersen forstjóri Fjármálaeftirlitsins, Gísli Tryggvason talsmaður neytenda, talsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna og sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. „Mikilvægt er að umbeðnir gestir verði allir í einu á fundinum þannig að þingmenn geti fengið sem besta yfirsýn yfir stöðu málsins," segir í tilkynningu frá Birki og Eygló.
Tengdar fréttir Dómstólar eiga síðasta orðið Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna tilmæla Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um gengistryggð lán segir að þótt tímabundin óvissa ríki um endanlega niðurstöðu dómstóla sé mikilvægt að stöðuleiki á fjármálamarkaði verði áfram tryggður. Ríkisstjórnin virðir sjálfstæði Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og ber fullt traust til þessara stofnana við að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Dómstólar eigi þó síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna lánanna. 30. júní 2010 12:54 Tilmælin eiga að skapa festu í viðskiptum og traustu fjármálakerfi Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segir að tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans til fjármálafyrirtækja vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða sé ætlað að skapa festu í viðskiptum og stuðla að öruggu fjármálakerfi. Með tilmælunum séu FME og Seðlabankinn að sinna þeirri lagaskyldu sem á þeim hvílir. Hann segir brýna almannahagsmuni krefjast þess að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið setji fram almennar leikreglur sem varðveiti stöðugleika á meðan greitt sé úr réttaróvissu. 30. júní 2010 10:22 Lilja Mósesdóttir: Það á allt eftir að loga í málaferlum „Það á allt eftir að loga í málaferlum,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, um tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um að lánastofnanir eigi að fylgja óverðtryggðum vöxtum Seðlabankans, í stað samningsvaxta gengistryggðra lánasamninga. 30. júní 2010 11:00 Samningar verði endurreiknaðir miðað við vexti Seðlabankans Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa sent fjármálafyrirtækjum þau tilmæli að þeim beri að endurreikna þau lán sem innihalda gengistryggingarákvæði sem eru óskuldbindandi samanber dóma Hæstaréttar. Ekki verði miðað við upphaflega vexti lánanna sem í mörgum tilvikum voru í kringum þrjú prósent, heldur vexti sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum sem nú gilda á lánamarkaði. Á vef Seðlabanka Íslands kemur fram að lægstu vextir á almennum óverðtryggðum útlánum er um 8,25% en á verðtryggðum lánum eru vextirnir 4,80%. 30. júní 2010 09:07 Segir Seðlabankann og FME hvetja til lögbrota „Ég fæ ekki betur séð en að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið séu að hvetja til lögbrota," segir Marinó G. Njálsson, hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, um tilmæli sem Seðlabankinn og FME beina til fjármálafyrirtækja vegna gengistryggðra lánasamninga og var tilkynnt um í morgun. 30. júní 2010 10:12 Segja seðlabankann og FME hafa lýst yfir stríði Samtök lánþega segja í yfirlýsingu að Seðlabanki og FME hafi í raun lýst yfir stríði á hendur almennum borgurum þessa lands með tilmælum sínum sem eftirlitsstofnanirnar tilkynntu í morgun. Þar var þeim tilmælum beint til fjármálafyrirtækja að fylgja vöxtum seðlabankans í stað þess að reikna úr lánin út frá samningsvöxtum. Vextir seðlabankans eru 8,25 prósent. 30. júní 2010 11:24 Segja ákvörðun FME og Seðlabankans vonbrigði Neytendasamtökin segja tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins vonbrigði. Neytendasamtökin hafa áður gefið út yfirlýsingu þar sem þau sögðu að samningsvextir ættu að standa þrátt fyrir að Hæstiréttur hefur dæmt gengistryggingu króna við erlendan gjaldmiðil ólögmæta. 30. júní 2010 13:48 Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Ursula von der Leyen kemur til Íslands Innlent Fleiri fréttir „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni" Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Sjá meira
Dómstólar eiga síðasta orðið Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna tilmæla Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um gengistryggð lán segir að þótt tímabundin óvissa ríki um endanlega niðurstöðu dómstóla sé mikilvægt að stöðuleiki á fjármálamarkaði verði áfram tryggður. Ríkisstjórnin virðir sjálfstæði Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og ber fullt traust til þessara stofnana við að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Dómstólar eigi þó síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna lánanna. 30. júní 2010 12:54
Tilmælin eiga að skapa festu í viðskiptum og traustu fjármálakerfi Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segir að tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans til fjármálafyrirtækja vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða sé ætlað að skapa festu í viðskiptum og stuðla að öruggu fjármálakerfi. Með tilmælunum séu FME og Seðlabankinn að sinna þeirri lagaskyldu sem á þeim hvílir. Hann segir brýna almannahagsmuni krefjast þess að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið setji fram almennar leikreglur sem varðveiti stöðugleika á meðan greitt sé úr réttaróvissu. 30. júní 2010 10:22
Lilja Mósesdóttir: Það á allt eftir að loga í málaferlum „Það á allt eftir að loga í málaferlum,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, um tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um að lánastofnanir eigi að fylgja óverðtryggðum vöxtum Seðlabankans, í stað samningsvaxta gengistryggðra lánasamninga. 30. júní 2010 11:00
Samningar verði endurreiknaðir miðað við vexti Seðlabankans Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa sent fjármálafyrirtækjum þau tilmæli að þeim beri að endurreikna þau lán sem innihalda gengistryggingarákvæði sem eru óskuldbindandi samanber dóma Hæstaréttar. Ekki verði miðað við upphaflega vexti lánanna sem í mörgum tilvikum voru í kringum þrjú prósent, heldur vexti sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum sem nú gilda á lánamarkaði. Á vef Seðlabanka Íslands kemur fram að lægstu vextir á almennum óverðtryggðum útlánum er um 8,25% en á verðtryggðum lánum eru vextirnir 4,80%. 30. júní 2010 09:07
Segir Seðlabankann og FME hvetja til lögbrota „Ég fæ ekki betur séð en að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið séu að hvetja til lögbrota," segir Marinó G. Njálsson, hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, um tilmæli sem Seðlabankinn og FME beina til fjármálafyrirtækja vegna gengistryggðra lánasamninga og var tilkynnt um í morgun. 30. júní 2010 10:12
Segja seðlabankann og FME hafa lýst yfir stríði Samtök lánþega segja í yfirlýsingu að Seðlabanki og FME hafi í raun lýst yfir stríði á hendur almennum borgurum þessa lands með tilmælum sínum sem eftirlitsstofnanirnar tilkynntu í morgun. Þar var þeim tilmælum beint til fjármálafyrirtækja að fylgja vöxtum seðlabankans í stað þess að reikna úr lánin út frá samningsvöxtum. Vextir seðlabankans eru 8,25 prósent. 30. júní 2010 11:24
Segja ákvörðun FME og Seðlabankans vonbrigði Neytendasamtökin segja tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins vonbrigði. Neytendasamtökin hafa áður gefið út yfirlýsingu þar sem þau sögðu að samningsvextir ættu að standa þrátt fyrir að Hæstiréttur hefur dæmt gengistryggingu króna við erlendan gjaldmiðil ólögmæta. 30. júní 2010 13:48