Fernando Torres verður að fara til hnésérfræðings Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2010 16:00 Fernando Torres skorar annað marka sinna í Evrópusigrinum á Benfica á dögunum. Mynd/AFP
Fernando Torres, framherji Liverpool, verður sendur til hnésérfræðings til að kanna meiðsli þau sem héldu honum frá markalausa jafnteflinu á móti Fulham um helgina. Torres hefur verið mikið frá vegna meiðsla á þessu tímabili og það hefur háð Liverpool-liðinu mikið. Fjarvera hins 26 ára spænska landsliðsmanns var mikið áfall fyrir Liverpool og úrslit helgarinnar þýddu að Liverpool á ekki lengur raunhæfa möguleika á að komast í Meistaradeildina á næsta ári. „Torres þarf að fara til sérfræðings og við erum að bíða eftir fréttum," sagði Rafael Benitez, stjóri Liverpool. Torres hefur verið að glíma við þessi hnémeiðsli í vetur og fór í aðgerð í janúar. Hann var einnig frá vegna nárameiðsla fyrir jól. „Við vitum ekkert hversu alvarlegt þetta er og verðum því að bíða eftir niðurstöðunum frá sérfræðingunum. Hann hefur verið að glíma við þessi meiðsli áður og við vorum að reyna að hlífa honum," sagði Benitez. Fernando Torres hefur skorað 22 mörk í 32 leikjum í öllum keppnum fyrir Liverpool á tímabilinu og það er flestum ljóst að bitleysi sóknarleiks Liverpool í vetur má rekja til fjarveru hans. Það sást sem dæmi í leiknum á móti Fulham um helgina.
Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Kona vann Ísmaraþonið á Suðurskautslandinu í fyrsta sinn Sport Fleiri fréttir City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Amorim verður ánægður ef Mainoo ræðir við hann um lán „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Sjá meira