Herforingjar í yfirheyrslu 24. febrúar 2010 05:15 Lögregla og her fyrir utan dómshúsið í Istanbúl meðan yfirheyrslur fóru fram.fréttablaðið/AP
Handtökur og yfirheyrslur yfirmanna í tyrkneska hernum þykja til marks um dvínandi áhrif hersins þar í landi og sterka stöðu núverandi stjórnvalda. Á mánudag var 51 fyrrverandi og núverandi yfirmaður í hernum tekinn höndum. Í gær hófust síðan yfirheyrslur yfir þeim. Mennirnir eru sakaðir um að hafa ætlað sér að steypa stjórn landsins á árunum 2003 til 2005. Bæði skjölum og upptökum með samræðum herforingjanna hefur verið lekið á Netið, en ágreiningur er um hvort upptökurnar séu falsaðar. Þar heyrist einn þeirra segja stjórnina ætla sér „að rífa niður landið og breyta því í annað íslamskt ríki“. Sama rödd segist ætla að hleypa liði sínu lausu á Istanbúl: „Það er skylda okkar að grípa til miskunnarlausra aðgerða.“ Herinn hefur áratugum saman haft mikil ítök í stjórn landsins og gripið til þess að steypa stjórninni, hafi yfirmönnum hersins ekki litist á stefnu hennar og störf. Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra hefur verið við völd síðan 2003. Flokkur hans, Réttlætis- og þróunarflokkurinn, hefur yfirgnæfandi meirihluta á þingi, þannig að stjórnin getur í reynd farið sínu fram að vild. Erdogan á rætur að rekja til hreyfingar harðra íslamista og stjórnarflokkur hans hefur á stefnuskrá sinni að efla veg íslamskrar trúar, en segist þó eingöngu gera það á forsendum lýðræðis, líkt og til dæmis kristilegir demókrataflokkar í Evrópuríkjum sem hafa kristileg gildi í hávegum. Herinn hefur á hinn bóginn jafnan haft í hávegum hinn veraldlega grundvöll tyrkneska ríkisins, þar sem þess er vandlega gætt að blanda ekki saman trúmálum og stjórnmálum. Erdogan segir stjórn sína nú vera að undirbúa stjórnarskrárbreytingu, til að draga úr áhrifum stjórnarbyltingar hersins árið 1980 á stjórnskipan landsins. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Sjá meira