Íbúasamtök styðja Kitty von Sometime 15. desember 2010 21:00 Kitty von Sometime.
Stjórn Íbúasamtaka miðborgar lýsir yfir ánægju með framtak listakonunnar Kitty von Sometime og veitingastaðarins Bakkusar að reyna að bæta dansmenningu miðborgarinnar með því að efna til dansleiks sem lýkur um miðnætti. Kitty sendi frá sér tilkynningu þar sem fólk er hvatt til þess að mæta á Bakkus þann 16.september næstkomandi en dansleikurinn hefst klukkan átta og lýkur klukkan eitt eftir miðnætti. Þetta gerir Kittý í því augnamiði að reyna að bæta skemmtanamenninguna í borginni sem hún segir einkennast af því að fólk sitji lengi heima að sumbli og fari ekki á staðina fyrr en seint um nótt. Íbúasamtökin taka undir með Kittý og segja: „Því miður standa nú nánast eingöngu til boða dansskemmtanir sem hefjast eftir miðnætti um helgar og standa fram undir morgun með háværri danstónlist sem raskar næturró íbúanna." Stjórnin hvetur því aðra veitingamenn til fylgja þessu fordæmi og reyna að fá fólk til að koma fyrr á staðina en nú er. „Það getur varla þjónað hagsmunum veitingamanna að fá ekkert fólk í hús fyrr en langt er liðið á nótt og þá oftlega orðið verulega ölvað. Það hlýtur að hafa í för með sér aukinn kostnað við starfsmannahald og gæslu auk þess sem það er bæði ólöglegt og siðlaust að selja dauðadrukknu fólki áfengi." „Stjórn Íbúasamtaka miðborgar skorar á veitingamenn, lögreglu og borgaryfirvöld að leggja íbúunum lið við að lyfta nætur- og skemmtanalífinu upp á örlítið hærra plan en nú er, með styttri opnunartíma og öflugara eftirliti og gæslu og þannig stuðla að betri borg allan sólarhringinn. Núverandi fylgifiskar næturlífsins, óþrif, ofbeldi og háreysti, eru hvorki íbúunum miðborgarinnar bjóðandi né heldur þeim sem þar starfa eða koma þangað í öðrum erindagjörðum en að drekka frá sér ráð og rænu," segir ennfremur.
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Fleiri fréttir Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Sjá meira