Innlent

Þyrla leitar fleiri bjarndýra

Gissur Sigurðsson skrifar
Björninn sem felldur var í gær.
Björninn sem felldur var í gær. Mynd/Hilma Steinsdóttir

Þyrla frá Landhelgisgæslunni verður send strax í birtingu til að leita að ísbjörnum á norðaustanverðu landinu.

Björninn sem skotinn var í Þistilfirði í gær var ungt dýr og því talið vel mögulegt að hann hafi verið í fylgd með móður sinni eða öðru fullorðnu dýri.

Lögreglan í Þingeyjarsýslum og Umhverfisstofnun hvetja fólk einkum í dreifbýli til þess að hafa allan vara á þegar það er á ferð útivið.

Þessi dýr eru stórhættuleg. Þótt þau virðist klunnaleg geta þau hlaupið hraðar en nokkur manneskja, ekki síst ef þau eru hungruð.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×