Telur vegið að jafnræði landsmanna 18. febrúar 2010 04:30 Heilbrigðisstofnun Suðurlands Bæjarstjórn Hveragerðis segir sjúkrastofnunina eiga að spara 130 milljónir í ár ofan á niðurskurðarkröfur sem mætt hafi verið í fyrra.
Bæjarstjórn Hveragerðis kveðst hafa miklar áhyggjur af 130 milljóna króna viðbótarniðurskurði á framlögum til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. „Er það alveg ljóst að slíkur niðurskurður kemur til með að hafa gríðarleg áhrif á þjónustu við íbúa svæðisins,“ segir bæjarstjórnin sem fullyrðir að ekki hafi verið með óyggjandi hætti hægt að sýna fram á hagræðingu niðurskurðarins. Meðal annars hafi þurft að leggja af vaktir fæðingar- og svæfingarlækna, draga úr umsvifum sjúkraflutninga og loka heilsugæslustöðvum á Eyrarbakka og Stokkseyri. „Með tilflutningi á þjónustu til höfuðborgarsvæðisins er ekki einungis verið að skerða þjónustu við íbúa heldur einnig að auka kostnaðarhlutdeild þeirra,“ segja Hvergerðingar. Þá segir bæjarstjórnin að gæta þurfi þess að íbúar á landsbyggðinni sitji við sama borð og höfuðborgarbúar þegar komi að öryggi og kostnaði við heilbrigðisþjónustu. „Ljóst er að með ofangreindum niðurskurði er verulega vegið að jafnræði landsmanna, ekki síst Sunnlendinga sem þurfa um fjallveg að fara þegar allra veðra er von,“ segir bæjarstjórnin sem þakkar stjórnendum og starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurlands „þá þrautseigju og þá útsjónarsemi sem það hefur sýnt við erfiðar aðstæður“. - gar
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira