Nýleg tækni byltir fuglarannsóknum 18. janúar 2010 02:30 Rannsóknir á þessum glæsilega fugli gefa vísbendingar um hvernig lífsháttum sjófugla er farið á vetrarstöðvum þeirra.mynd/ævar Petersen
Notkun ljósrita, sem er örsmátt mælitæki sem skráir ferðir dýra, hefur bylt upplýsingaöflun um lífshætti fugla. Íslenskir vísindamenn nýta þessa tækni nú þegar til rannsókna á nokkrum tegundum íslenskra fugla. Ævar Petersen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ), segir að hefðbundnar merkingar hafi hingað til ekki gefið nægilega góðar upplýsingar um lífshætti fugla sem halda sig langt úti á sjó. „Þessi tækni er því algjör bylting og við munum sjá það á næstu árum að mikið af áhugaverðum upplýsingum um fjölda fuglategunda mun líta dagsins ljós.“ Ævar tekur þátt í fjölþjóðlegri rannsókn á farháttum kríu þar sem þessari tækni er beitt. Með niðurstöðum hennar verður kaflinn um kríuna í skólabókum heimsins endurskrifaður. Þessi smái fugl reynist vera víðförulli en nokkurn grunaði en hann flýgur um sjötíu þúsund kílómetra í árlegum ferðum sínum á milli póla, eins og Fréttablaðið fjallaði um á fimmtudag. Sérfræðingar hjá Náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum hafa sett ljósrita (tækið er einnig kallað gagnariti) á skrofur í samstarfi við spænska kollega sína, en niðurstöður úr þeirri rannsókn eru væntanlegar. Hafa þeir meðal annars komist að því að skrofurnar flugu beint suður til Patagóníu í Suður-Argentínu, en krían kemur þar við á lífríku hafsvæði á pólflugi sínu. „Þær upplýsingar voru allt aðrar en við höfðum um skrofuna fyrir þann tíma.“ Ævar segir að ljósriti hafi einnig verið settur á þrjátíu lóma austur á Mýrum. „Við erum búnir að fá sjö fugla til baka og vonumst eftir að fá fleiri í sumar. Þessir sjö hafa sagt okkur að lómarnir halda sig aðallega á sundinu á milli Grænlands og Íslands yfir vetrartímann. Þó var mjög áhugavert að í fyrra náðum við merktu varppari; annar fuglinn hélt sig út af Snæfellsnesi um veturinn en hinn við suðurodda Grænlands. Þetta gefur eitt svar við gamalli spurningu um hegðun fugla að vetrarlagi sem para sig ár eftir ár á varpstöðvum, eins og reyndar flestir sjófuglar gera.“ Íslenskar hrafnsendur, sem er fágæt tegund hér á landi, voru merktar í fyrrasumar norður í Aðaldal. Vonast er til að í ljós komi hvar vetrarstöðvar þeirra eru, og hvaða leið þær velja á farflugi sínu, segir Ævar. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira