Skortur á einangrun endar með stórslysi 7. janúar 2010 06:00 Einangrunargangur á Litla-Hrauni. Tíu einangrunarpláss eru í fangelsum landsins. Þau eru fullsetin og vista þarf einangrunarfanga á lögreglustöðvum. „
Við þurfum að fá að vita hvenær og hverjar úrbætur verða gerðar á einangrunarmálum fanga hér á landi. Annars endar þetta bara með stórslysi." Þetta segir Erlendur S. Baldursson, aðstoðarmaður forstjóra Fangelsismálastofnunar. Síðdegis í gær sátu þrjátíu manns í gæsluvarðhaldi, þar af helmingur í einangrun. Fangelsismálastofnun hefur yfir að ráða samtals tíu einangrunarplássum. Í gær og fyrradag voru tíu manns úrskurðaðir í gæsluvarðhald og allir í einangrun. Flestir þeirra eru af erlendum uppruna. Í einangrun sitja ásamt fleirum fyrir þrír strokufangar, tveir íslenskir sem reyndu að strjúka af Litla- Hrauni fyrir nokkrum dögum og einn erlendur. Umræddir þrír strokufangar sæta þeim viðurlögum að vera í einangrunarvist í allt að hálfum mánuði. Erlendur segir að af þessum tíu mönnum sem úrskurðaðir voru í einangrun á tveim síðustu sólarhringum sé pláss fyrir tvo til þrjá á Litla-Hrauni. Hina verði að vista á lögreglustöðvum þar til pláss skapist í fangelsum. „Við erum með alltof fá einangrunarpláss, þegar svona kemur upp á eins og margoft hefur verið bent á," segir Erlendur. „Kerfið þolir því óskaplega lítið. Það er alltaf við suðumark og er alltaf pínt upp í efstu mörk. Ef upp kemur eitthvert brot þar sem margir eru úrskurðaðir í einangrun, þá höfum við einfaldlega ekki pláss, sem aftur þýðir að lögreglan þarf að snúast með þessa fanga um allar trissur." Erlendur minnir á tillögur Fangelsismálastofnunar til úrbóta í þessum málum, sem nú liggja fyrir. „Okkur vantar auðvitað nýtt fangelsi. Það er ekkert öðruvísi. Við getum ekki endalaust notað fangelsi sem halda hvorki vatni né vindi, eins og Hegningarhúsið," undirstrikar Erlendur. „Í Bitru fáum við eitthvað um tuttugu afplánunarpláss en það hjálpar ekkert upp á einangrunarmálin, þar sem hafa þarf menn í haldi af því að þeir eru hættulegir eða vegna rannsóknarhagsmuna. Dómsmálaráðherra hefur stutt við þennan málaflokk eftir föngum og það ber að þakka. En fjárveitingarvaldið verður að fara að gera sér grein fyrir alvarlegri stöðu mála hér." jss@frettabladid.is
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira