Óður hrafn drepinn á Akranesi Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. október 2010 11:41 Hrafnar geta verið skæðir. Mynd/ Kristján.
Árásargjarn hrafn réðst á barn og hund á Akranesi í gær. Hann var aflífaður í viðurvist lögreglumanna eftir árásina, segir á fréttavefnum Skessuhorni. „Við bendum fólki á að vara sig á hröfnum sem flýja ekki undan mannfólkinu. Þessi var einstaklega árásargjarn," segir húsmóðir í samtali við Skessuhorn. Hún var ein heima með barn sitt þegar lætin hófust. Heimilisfaðirinn var kallaður heim og síðan var haft samband við Náttúrufræðistofnun sem veitti leyfi til þess að Hrafninn yrði aflífaður. Húsmóðirin segir í samtali við Skessuhorn að hrafninn hafi sest á pall við heimili fjölskyldunnar. Dóttir hennar hafi verið úti með hundinn, sem er þriggja mánaða hvolpur. Hrafninn hafi staðið á pallveggnum og mænt á þau. Þegar stelpan hafi beygt sig niður til að ná í spýtu fyrir hundinn, sem var hálfpartinn undir henni, hafi hrafninn ráðist á hana og reynt að grípa í bakið á henni. „Barnið varð skelfingu lostið, öskraði og hljóp inn með hundinn á eftir sér. Ef ég hefði ekki náð að loka hurðinni þá hefði hrafninn komið inn á eftir þeim. Þetta kvikindi hékk svo gargandi á pallinum heillengi og þvílík vonska í honum," segir konan í samtali við Skessuhorn.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira