Enski boltinn

Búið að draga í enska bikarnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eiður fær kannski að koma af bekknum í seinni leiknum gegn Fulham.
Eiður fær kannski að koma af bekknum í seinni leiknum gegn Fulham.

Chelsea mætir Aston Villa í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar en dregið í var í undanúrslitin áðan. Möguleiki er á Íslendingaslag í hinum leiknum.

Þar mætir Portsmouth, lið Hermanns Hreiðarssonar, annað hvort Tottenham eða Fulham. Eiður Smári Guðjohnsen er eins og kunnugt er á mála hjá Spurs.

Leikirnir fara fram á Wembley 10. og 11. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×