Erlent

Segir Grikkjum að óttast ekki AGS

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að Grikkir þurfi ekki að óttast Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Með þessum ummælum sínum var hann að bregðast við gagnrýni grísks blaðamanns sem sagði að Grikkir litu hornauga á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og álitu að hann myndi gera ástandið í Grikklandi verra. Strauss-Kahn sagði að tilgangur AGS væri að hjálpa Grikkjum.

Þetta kemur fram á fréttavef BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×