Friðarviðræður á ný 3. september 2010 05:00 Bæði Benjamin Netanjahú og Mahmoud Abbas segja að tími sé kominn til að láta reyna á viðræður. Obama segir ef til vill langt í að annað tækifæri gefist.
Beinar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna hófust í gær í Bandaríkjunum eftir tveggja ára hlé. Þátttakendur sögðust hóflega bjartsýnir, en stefna á að ljúka viðræðum innan árs með samningi um stofnun Palestínuríkis. „Þetta tækifæri fæst ef til vill ekki fljótt aftur," sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti, sem hafði boðið þeim Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínustjórnar, til viðræðna í Washington. Viðræðurnar fóru fram í húsakynnum utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, undir stjórn Hillary Rodham Clinton utanríkisráðherra og George Mitchell, sérlegs sendifulltrúa Bandaríkjanna í málefnum Mið-Austurlanda. Deilumálin eru í meginatriðum þau sömu og fyrr, nefnilega hvar endanleg landamæri ríkjanna eiga að liggja, hver verður staða Jerúsalemborgar og hvað verður um palestínska flóttamenn, svo nokkur þau erfiðustu séu nefnd. Sem fyrr er óttast að andstæðingar viðræðna heima fyrir, bæði úr röðum Palestínumanna og Ísraela, muni gera sitt til að upp úr þeim slitni með því að fremja ofbeldisverk og ögra mótherjanum á alla lund. Þetta sýndi sig þegar vopnaðir Hamasliðar skutu til bana fjóra ísraelska landtökumenn á Vesturbakkanum fyrr í vikunni, áður en viðræðurnar hófust. Bæði Netanjahú og Abbas sögðu rétt að láta reyna á viðræður. Netanjahú sagði að hugsanlegur samningur yrði að tryggja fullkomlega öryggi Ísraela, en Abbas sagði að Ísraelar yrðu að gefa Palestínumönnum skýr merki um raunverulegan samningsvilja. Innan fárra vikna mun reyna á það þegar sú frysting, sem Ísraelsstjórn setti í sumar í kjölfar harðra deilna á framkvæmdir ísraelskra landtökumanna, rennur út. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Allir mennir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Sjá meira