Helst til mikið gert úr alræðisvaldinu 28. janúar 2010 03:15 Nefnd mennta- og menningarmálaráðherra telur að tekjur RÚV þurfi að vera fyrirsjáanlegar nokkur ár fram í tímann. Útvarpsstjóri er hjartanlega sammála því. fréttablaðið/gva „
Mér líst vel á skýrsluna og er hjartanlega sammála mörgum tillögum sem þar koma fram um breytingar á umbúnaði og regluverki Ríkisútvarpsins,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. Starfshópur mennta- og menningarmálaráðherra hefur lagt fram ýmsar tillögur um breytingar á lögum og starfsháttum Ríkisútvarpsins með hliðsjón af almannaþjónustuhlutverki þess. Er horft til tæplega þriggja ára fenginnar reynslu af rekstri RÚV sem opinbers hlutafélags. Páll telur tillögurnar gott innlegg í þá umræðu sem þurfi að vera um Ríkisútvarpið en varar engu að síður strax við að horfið verði til fyrra rekstrarforms. „Þótt menn kunni að finna eitthvað athugavert þá held ég að sökina fyrir því sé ekki að finna í hlutafélagsforminu. Stofnunin var á sínum tíma komin í algjörar blindgötur.“ Hann segir þó að hlutafélagaformið sé ekki heilagt, vel megi hugsa sér annað rekstrarform en stofnanaformið henti ekki. Í skýrslunni er útvarpsstjóri sagður nánast alráður um dagskrá, mannaráðningar og stefnumótun. Það sé ólýðræðislegt, ógagnsætt og óviðeigandi. Páll telur að helst til mikið sé gert úr þessu alræðisvaldi og bendir á að stefnumótunin, sjálf dagskrárstefnan, ráðist af vilja stjórnvalda og birtist í þjónustusamningi Ríkisútvarpsins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins. „Þetta ræðst af því hvað eigandinn vill kaupa fyrir peninginn sem hann leggur stofnuninni til,“ segir Páll. Rétt sé þó að lögum samkvæmt liggi endanlegt ritstjórnarvald og vald til mannaráðninga hjá útvarpsstjóra. „En gamla formið var komið í ógöngur; ábyrgð og völd voru óskýr. Og ég vara við gamla farinu þar sem vald yfir mannaráðningum og dagskránni var í höndum stjórnmálamanna í gegnum pólitískt kjörið útvarpsráð.“ Páll tekur undir hvert orð í skýrslunni um mikilvægi þess að tekjur Ríkisútvarpsins verði fyrirsjáanlegar nokkur ár fram í tímann. Núverandi ástand sé óviðunandi enda áætlanagerð og framþróun í dagskrársetningu nánast ómöguleg. Um gagnrýni á eigin fréttalestur segir Páll að vissulega kunni að koma upp aðstæður þar sem hann geti talist óheppilegur. Gerist það dragi hann sig í hlé, líkt og nú þegar fjármál RÚV hafa verið í brennidepli. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira