Innlent

Helst til mikið gert úr alræðisvaldinu

Nefnd mennta- og menningarmálaráðherra telur að tekjur RÚV þurfi að vera fyrirsjáanlegar nokkur ár fram í tímann. Útvarpsstjóri er hjartanlega sammála því. fréttablaðið/gva
Nefnd mennta- og menningarmálaráðherra telur að tekjur RÚV þurfi að vera fyrirsjáanlegar nokkur ár fram í tímann. Útvarpsstjóri er hjartanlega sammála því. fréttablaðið/gva

„Mér líst vel á skýrsluna og er hjartanlega sammála mörgum tillögum sem þar koma fram um breytingar á umbúnaði og regluverki Ríkisútvarpsins,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri.

Starfshópur mennta- og menningarmálaráðherra hefur lagt fram ýmsar tillögur um breytingar á lögum og starfsháttum Ríkisútvarpsins með hliðsjón af almannaþjónustuhlutverki þess. Er horft til tæplega þriggja ára fenginnar reynslu af rekstri RÚV sem opinbers hlutafélags.

Páll telur tillögurnar gott innlegg í þá umræðu sem þurfi að vera um Ríkisútvarpið en varar engu að síður strax við að horfið verði til fyrra rekstrarforms. „Þótt menn kunni að finna eitthvað athugavert þá held ég að sökina fyrir því sé ekki að finna í hlutafélagsforminu. Stofnunin var á sínum tíma komin í algjörar blindgötur.“ Hann segir þó að hlutafélagaformið sé ekki heilagt, vel megi hugsa sér annað rekstrarform en stofnanaformið henti ekki.

Í skýrslunni er útvarpsstjóri sagður nánast alráður um dagskrá, mannaráðningar og stefnumótun. Það sé ólýðræðislegt, ógagnsætt og óviðeigandi. Páll telur að helst til mikið sé gert úr þessu alræðisvaldi og bendir á að stefnumótunin, sjálf dagskrárstefnan, ráðist af vilja stjórnvalda og birtist í þjónustusamningi Ríkisútvarpsins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins. „Þetta ræðst af því hvað eigandinn vill kaupa fyrir peninginn sem hann leggur stofnuninni til,“ segir Páll. Rétt sé þó að lögum samkvæmt liggi endanlegt ritstjórnarvald og vald til mannaráðninga hjá útvarpsstjóra. „En gamla formið var komið í ógöngur; ábyrgð og völd voru óskýr. Og ég vara við gamla farinu þar sem vald yfir mannaráðningum og dagskránni var í höndum stjórnmálamanna í gegnum pólitískt kjörið útvarpsráð.“

Páll tekur undir hvert orð í skýrslunni um mikilvægi þess að tekjur Ríkisútvarpsins verði fyrirsjáanlegar nokkur ár fram í tímann. Núverandi ástand sé óviðunandi enda áætlanagerð og framþróun í dagskrársetningu nánast ómöguleg.

Um gagnrýni á eigin fréttalestur segir Páll að vissulega kunni að koma upp aðstæður þar sem hann geti talist óheppilegur. Gerist það dragi hann sig í hlé, líkt og nú þegar fjármál RÚV hafa verið í brennidepli.

bjorn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×