Capello: Terry verður ekki fyrirliði á meðan ég er landsliðsþjálfari Ómar Þorgeirsson skrifar 28. febrúar 2010 13:45 John Terry og Fabio Capello. Nordic photos/AFP „
Terry verður ekki fyrirliði fram að HM né heldur á meðan mótið stendur yfir. Hvað með eftir HM? Ef ég verð áfram með liðið, þá gildir það sama. Terry verður ekki fyrirliði á meðan ég er landsliðsþjálfari. Ég fór sérstaklega fram á að fyrirliði landsliðsins myndi sýna gott fordæmi fyrir ungt fólk og það sem hann gerði er óafsakanlegt. Ég er búinn að segja honum það og hann skildi mína afstöðu," sagði landsliðsþjálfarinn Fabio Capello hjá Englandi í viðtali við Guardian þegar hann var spurður út í það hvort að John Terry myndi einhvern tímann fá fyrirliðabandið aftur. Capello tók sem kunnugt er fyrirliðabandið af Terry eftir að upp komst um framhjáhald varnarmannsins með barnsmóður og fyrrum kærustu Wayne Bridge sem gefur í kjölfarið ekki lengur kost á sér í landsliðið. Capello segir Terry þó áfram hafa mikilvægu hlutverki að gegna í landsliðinu. „Ég hugsaði aldrei um að taka Terry alfarið út úr landsliðinu. Terry er áfram mikilvægur hlekkur í liðinu og leiðtogahæfileikar hans nýtast liðinu áfram þó svo að hann beri ekki fyrirliðabandið," sagð Capello.
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira