Innlent

Óheppinn bíleigandi fær ekki tjón bætt

Óheppinn bíleigandi á Reykjavíkursvæðinu varð fyrir tæplega 200 þúsund króna tjóni þegar dekkjaþjófar létu greipar sópa á bílaplani fyrir framan heimil hans. Tryggingafélag mannsins neitar að bæta tjónið.

Eins og fréttastofa greindi frá í síðustu viku hafa dekkjaþjófar verið nokkuð stórtækir á höfuðborgarsvæðinu undanfarna mánuði. Fjölmörg slík mál hafa komið inn á borð lögreglunnar.

Viðar Már Þorsteinsson varð fyrir því óhappi í haust að dekkjaþjófar létu greipar sópa á bílaplaninu fyrir framan heimili hans í Árbænum. Hann uppgötvaði þjófnaðinn þegar hann vaknaði.

„Ég leit út um gluggann og sá að bílinn var eitthvað furðulegur. Datt í hug að það væri sprungið dekk svo fór ég að skoða betur og sá þá að búið var að hreinsa undan honum. Tveir bíltjakkar, eins og fylgja varadekkinu, voru sitthvoru megin og búið að tjakka hann niður hægra megin þannig að hann hallaði óvenjulega. Þannig að þetta var allt horfið," segir Viðar Már.

Bíllinn var skilinn eftir á hjólaskálunum en þjófarnir komust undan með öll dekkin sem voru á álfelgum. Tjónið er metið á 180 til 190 þúsund krónur.

„Ég er hjá góðu tryggingafélagi sem auglýsir ef þú ert tryggður þá færður það bætt. Það stóð ekki steinn yfir steini í þeirri yfirlýsingu," segir Viðar Már.

Tjónið fékkst sem sagt ekki bætt og ætlar Viðar Már að skipta um tryggingafélag.




Tengdar fréttir

Mikið um dekkjaþjófnað á höfuðborgarsvæðinu

Mikið hefur verið um dekkjaþjófnað á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum mánuðum og dæmi um að dekkjum hafi verið stolið undan bíl fyrir framan heimili fólks á meðan það var í fastasvefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×