Minni pressa á Valsliðinu núna Hjalti Þór Hreinsson skrifar 12. júní 2010 09:45 Sigurbjörn í leiknum gegn KR. Fréttablaðið/Vilhelm "
Þetta er maður alinn upp við, þessa nágrannaslagi stórveldanna í Reykjavík, sagan og umgjörðin," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson um ástæðu þess af hverju það er svona sérstakt að vinna KR. Hann er leikmaður 6. umferðar Pepsi-deildarinnar að mati Fréttablaðsins og Vísis. Sigurbjörn átti góðan leik í 2-1 sigrinum í Vesturbænum sem skilur KR enn eftir án sigurs í deildinni. Valsliðið er í öðru til fimmta sæti með ellefu stig eftir sex leiki. Sigurbjörn segir að liðið finni ekki fyrir neinni pressu í ár. "Við settum þetta þannig upp að við erum ekkert að setja pressu á okkur, við erum bara að móta gott lið og það gengur vel. Í byrjun móts er þetta eins og að grafa holu, maður lítur ekkert upp fyrr en maður nálgast takmarkið." Sigurbjörn hrósar Gunnlaugi Jónssyni þjálfara sem stýrir nú Val á sínu fyrsta tímabili. "Hann hefur fengið ferskleika inn í hópinn, hann heldur mönnum á tánum. Það er meira frjálsræði hjá honum en góður agi líka. Hópurinn var brotinn í haust en hann sá það og hefur náð að laga það. Leikmenn leggja sig alla fram, sem er skilyrði til að geta eitthvað," segir Sigurbjörn. Sigurbjörn verður samningslaus í haust og stefnir á þjálfun. Hann segir óvíst hvað hann gerir. "En ég á nokkur ár eftir í boltanum, ég get spilað áfram og ástandið á mér hefur alltaf verið gott," sagði Sigurbjörn áður en talið barst að undirbúningstímabilinu þar sem hann var meiddur. "Ég hefði viljað spila meira, Pepsi-deildin er mikið breytt frá gömlu tímunum þar sem þú gast mætt með hálfum hug í fyrstu fimm umferðirnar og spilað þig í gang. Menn voru oft að spila handbolta fram í maí og komust svo í fótboltagír í fyrstu leikjum mótsins. Þú kæmist aldrei upp með það í dag. Sumir voru kannski í landsliðinu í þremur greinum og mættu svo bara brattir í Íslandsmótið," segir Sigurbjörn. Hann segir menn einnig almennt í betra líkamlegu ástandi nú en á árunum þegar hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. "Þú sérð ekki lengur nokkurn mann sem er bara í rólegheitunum. Ef þú ert ekki í standi sjá það allir og þú ert bara kallaður feitur eða lendir illa í því. En þegar ég var að byrja mátti auðvitað bæði spila legghlífalaus og markmaður mátti taka með höndum," rifjaði Sigurbjörn upp. "Það hefur gríðarlega mikið breyst en menn eru auðvitað að fá borgað núna. Ef þú biður um þriggja daga frí í mars veit þjálfarinn varla hvert hann ætlar," segir hann kíminn. "Pressan er allsstaðar, frá öllum. Menn byrja að hugsa um að komast í Evrópukeppnir, áhorfendur hafa margfaldast, umfjöllum og umgjörð eru miklu betri og aðstæður leikmanna líka. Þetta leiðir allt af sér betri fótbolta," segir Sigurbjörn Hreiðarsson.Lið 6. umferðar (3-5-2)Markvörður: Fjalar Þorgeirsson (Fylkir)Varnarmenn: Daníel Laxdal (Stjarnan) Atli Sveinn Þórarinsson (Valur) Jón Orri Ólafsson (Fram)Miðvallarleikmenn: Halldór Orri Björnsson (Stjarnan) Guðmundur Kristjánsson (Breiðablik) Jón Guðni Fjóluson (Fram) Sigurbjörn Hreiðarsson (Valur) Steinþór Freyr Þorsteinsson (Stjarnan)Sóknarmenn: Tryggvi Guðmundsson (ÍBV) Atli Viðar Björnsson (FH)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport „Takk fyrir mig Keflavík, þetta var æðisleg sería“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG Fótbolti Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Fótbolti Ísland fékk sínu ekki framgengt: Rússar mega sigla undir hlutlausum fána Sport Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Enski boltinn Elísabet stórbætti Íslandsmetið og Júlía hljóp annað met Guðrúnar uppi Sport „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Fótbolti Fleiri fréttir Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik Sjá meira