Hundrað konur mættu í brúðarkjól í IKEA 19. júní 2010 20:30
Yfir hundrað konur mættu í brúðarkjól í verslun IKEA í dag til að samgleðjast hinum konunglegu sænsku brúðhjónum. Konurnar fengu glaðning í tilefni dagsins en mest um vert var að samgleðjast krónprinsessunni Viktoríu sem ber nú baug á fingri. Það var eins og úr sögu eftir H. C. Andersen, brúðkaup sænsku krónprinsessunar Viktoríu, sem haldið var í dómkirkjunni Storkyrkan í Stokkhólmi í dag. Þjóðhöfðingjar og kóngafólk flykktist til borgarinnar hvaðanæva af úr heiminum í sínu fínasta pússi, en enginn komst þó í hálfkvisti við prinsessuna sjálfa. Sjáið hvað hún er glæsileg í brúðarkjólnum. Og brúðguminn, almúgamaðurinn Daniel Westling sem kynntist prinsessunni sem einkaþjálfari hennar fyrir átta árum, gat vart tárum varist þegar hann dró hring á fingur heitkonu sinnar og varð þar með prins í ríkinu. Íslensku forsetahjónin sátu á fremsta bekk í kirkjunni, en þau munu svo sækja 500 gesta hátíðarkvöldverð í konungshöllinni í kvöld og færa brúðhjónunum myndarlega glerskál í brúðargjöf. Að athöfninni lokinni tók við eins konar konungleg þríþraut. Fyrst óku brúðhjónin um sjö kílómetra leið í hestvagni um borgina og var fagnað hvarvetna. Að því loknu reru þau út úr höfninni í Stokkhólmi og fengu svo loks að fagna í brúðkaupsveislunni, sem stendur fram eftir kvöldi. Á Íslandi fagnaði sænska húsgagnaverslunin IKEA brúðkaupinu með sínum hætti, en konur sem mættu í brúðarkjól og létu taka af sér mynd í prinsessurúmi verslunarinnar fengu glaðning af tilefni dagsins. Alls komu 107 hvítklæddar konur í verslunina og samglöddust sænsku brúðhjónunum með þessum skemmtilega hætti.
Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent