Enski boltinn

Wigan vann Liverpool í fyrsta sinn

Elvar Geir Magnússon skrifar

Wigan vann Liverpool á DW vellinum í kvöld 1-0 en þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Wigan nær að vinna Liverpool. Liðið komst upp í 14. sæti deildarinnar.

Hugo Rodallega skoraði eina mark leiksins eftir skelfileg mistök Dirk Kuyt í fyrri hálfleik. Fernando Torres komst næst því að jafna fyrir Liverpool en misnotaði dauðafæri.

Ansi slæm úrslit fyrir Liverpool sem berst um fjórða sæti deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×