Rafael Benítez: Aquilani veit alveg um hvað þetta snýst Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2010 10:30 Alberto Aquilani. Mynd/Getty Images
Rafael Benitez, stjóri Liverpool, segist ekkert vera búinn að gleyma Ítalanum Alberto Aquilani þótt að hann gefi honum nánast engin tækifæri með enska úrvalsdeildarliðinu. Aquilani verður væntanlega líka á bekknum í kvöld þegar Liverpool sækir Wigan heim í ensku úrvalsdeildinni en liðið kemst upp í fjórða sætið með sigri. Suður-Ameríkumennirnir Javier Mascherano og Lucas verða væntanlega saman á miðju Liverpool í þessum mikilvæga leik í kvöld. „Það er erfiður tími fyrir leikmann þegar hann er búinn að vera meiddur í langan tíma. Það er enn erfiðara að komast af stað þegar liðið er að spila vel. Ég sem stjóri verð að meta það hvort ég hafi efni á því að gefa honum tvo eða þrjá leiki þegar ég veit að hann er ekki kominn í sitt besta form því það gæti kostað liðið tap," segir Rafael Benitez en Alberto Aquilani hefur aðeins einu sinni spilað í allar 90 mínúturnar með Liverpool. „Alberto er ekki vitlaus. Hann veit að liðið gengur fyrir og það skiptir mestu máli að því gangi vel. Það eina sem hann getur gert er að halda áfram að æfa vel og passa upp á það að vera klár þegar við þurfum á honum að halda. Það er samt mikilvægast fyrir alla að átta sig á því að við erum að hugsa um allt liðið en ekki einn leikmann," sagði Benitez. „Ég er búinn að tala við Aquilani og hann veit alveg um hvað þetta snýst. Alberto er fagmaður. Hann var stórt nafn á ítalíu og hann vill sanna sig hér," sagði Benitez og ítrekaði það að það sé ekki ástand leikvallarins sem ráði því hvort Alberto Aquilani spili eða ekki.
Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Mikael beittur kynþáttaníði Fótbolti Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Enski boltinn Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Enski boltinn Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 Fleiri fréttir Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Sjá meira