Innlent

Kjörsókn fer yfir 60 prósent

Frá þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær. Mynd / Pjétur.
Frá þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær. Mynd / Pjétur.

Alls hafa 141.284 atkvæði verið talin samkvæmt fréttavef RÚV en þar af hafa 131.639 sagt nei við Icesave-lögunum sem gera 93,2 prósent. Já sögðu 2.513 sem eru 1,8 prósent. 6648 skiluðu auðu og ógildir seðlar voru 484.

Lokatölur eru komnar úr öllum kjördæmum nema Norðausturkjördæmi. Þar var talningu frestað því ekki hefur verið hægt að flytja atkvæði Grímseyinga til lands.

Miðað við nýjustu tölur þá er ljóst að kjörsókn fer yfir 60 prósent. Alls eru 230.014 á kjörskrá og 143.784 kusu. Því greiddu 62,5 prósent þjóðarinnar atkvæði í kosningunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×