Smokkar settir í hæsta skattþrepið 12. ágúst 2010 07:00 álfheiður ingadóttir „
Ríkið setur smokka í hæsta skattþrep sem gerir það að verkum að það er 25,5 prósenta virðisaukaskattur á þeim,“ segir Halldór Guðmundsson, annar eigandi Líkama og lífsstíls, umboðsaðila One smokka á Íslandi. Halldór er þeirrar skoðunar að smokkar ættu að vera án virðisaukaskatts eða í mesta lagi skattlagðir eins og matvæli og aðrar nauðsynjavörur. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra segir beiðni frá Sóttvarnaráði hafa legið á borði heilbrigðisráðuneytisins frá því árið 2004, varðandi aðgang ungs fólks að ókeypis smokkum. „Klamidía er í sókn hér á landi og það kemur í ljós í könnun frá því í sumar að það eru ekki nema tuttugu prósent ungmenna sem nota smokk,“ segir Álfheiður. „Allt frá árinu 2004 hefur Sóttvarnaráð lagt þetta til við ráðherra án þess að það hafi leitt til niðurstöðu. Við höfum kallað eftir upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu og Landlækni varðandi þetta mál.“ Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu voru tekjur ríkisins árið 2009 af innflutningi á smokkum um 25,6 milljónir, fyrir álagningu heild- og smásala. Haraldur Briem sóttvarnalæknir, segir vel fylgst með smitleiðum kynsjúkdóma af Landlæknisembættinu. „Það myndi draga gríðarlega úr tíðni ýmissa kynsjúkdóma ef Íslendingar væru duglegri að nota smokkinn,“ segir Haraldur. „Það er verið að skoða þessi mál í fullri alvöru. Hvort mögulegt sé að auka aðgengi að smokkum og lækka verðið á þeim. Einnig verður að sannfæra ungt fólk í eitt skipti fyrir öll um mikilvægi þess að nota þá.“ Haraldur segir gríðarlegan kostnað fylgja því að greiða niður smokka, en það hafi verið rætt innan embættisins. Stefán R. Birgisson, deildarstjóri hjá Halldóri Jónssyni ehf., umboðsaðila Durex á Íslandi, er ekki sammála því að verð á smokkum sé fyrirstaða hjá ungu fólki. „Notkunin hefur haldist stöðug á síðustu árum,“ segir Stefán. „Smokkar eru ekki feimnismál lengur og að meðaltali kostar stykkið um 150 krónur.“ Samkvæmt könnun Fréttablaðsins eru smokkar ódýrastir í netversluninni Smokkur.is, 1.199 krónur stór pakki. sunna@frettabladid.is smokkar Sóttvarnaráð bað stjórnvöld fyrst um að niðurgreiða smokka 2004.
Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira