Innlent

Eldri borgari stöðvaður með kíló af kókaíni

Úr safni.
Úr safni.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði tæplega sjötugan Íslending við komu frá Kaupmannahöfn í síðustu viku. Við leit í ferðatöskum hans fannst tæpt kíló af kókaíni, að fram kemur á vef lögreglunnar. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var maðurinn með efnin falin í ferðatösku. Hann var að koma frá Kaupmannahöfn. Maðurinn hefur aldrei komið við sögu lögreglunnar áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×