Innlent

Póstdreifingarmiðstöð flutt frá Hvolsvelli til Hellu

Hella Útlit er fyrir að póstdreifingarmiðstöð Íslandspósts flytji frá Hvolsvelli á Hellu.
Hella Útlit er fyrir að póstdreifingarmiðstöð Íslandspósts flytji frá Hvolsvelli á Hellu.

Stjórn Íslandspósts hefur samþykkt fyrir sitt leyti að flytja póstdreifingarmiðstöðina á Hvolsvelli til nágrannabæjarins Hellu. Guðmundur Oddsson, formaður stjórnarinnar, segir endanlega ákvörðun vera í höndum Ingimundar Sigurpálssonar, forstjóra Íslandspósts.

Ástæða fyrirhugaðs flutnings er sú að á Hvolsvelli hefur Íslandspóstur deilt húsnæði með Eldstó Café & Hús leirkerasmiðsins, sem hefur gert kauptilboð í allt húsnæðið.

Guðmundur segir að flutningurinn á Hellu muni ekki koma niður á þjónustunnni á Hvolsvelli. Íslandspóstur verði áfram með afgreiðslu þar og hafi náð samkomulagi við Landsbankann um að hún verði í húsnæði bankans á Austurvegi. Hann segist telja að flutningurinn á Hellu sé besti kosturinn en tekur fram að um tímabundna lausn sé að ræða, hugsaða til um það bil þriggja ára. Fyrri samþykktir stjórnar Íslandspósts um að vera með póstdreifingarmiðstöð á Hvolsvelli standi.

Íslandspóstur hefur átt í viðræðum við eigendur fyrirtækisins Raffoss á Hellu um að leigja af þeim húsnæði. Þorgils Gunnarsson, hjá Raffoss, segir að gerð hafi verið drög að leigusamningi þó ekkert hafi verið undirritað. Hann hafi byrjað að innrétta húsið fyrir nokkrum vikum en nú sé allt stopp því hann hafi ekkert heyrt frá Íslandspósti í þrjár vikur.

Örn Þórðarson, sveitarstjóri Rangárþings ytra á Hellu, segist vonast til að málið fái farsæla lausn. Hann telji að tímabundið sé best að hafa póstdreifingarmiðstöðina á Hellu.

„Ég vona að þetta mál fái farsæla lendingu,“ segir Örn.

Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra á Hvolsvelli, segir að sveitarstjórnin hafi bent Íslandspósti á hentugt húsnæði á Hvolsvelli en engin svör hafi borist. Hann segir vissulega bagalegt að missa póstdreifinguna á Hellu, jafnvel þó að flutningurinn sé hugsaður til skamms tíma.

„Það er klúður ef þeir ætla að flytja á Hellu og koma síðan aftur á Hvolsvöll seinna,“ segir Elvar. „Auðvitað er maður hræddur um að starfsemin komi ekki aftur en við verðum að treysta því að Íslandspóstur standi við orð sín og byggi upp á Hvolsvelli í framtíðinni.“

trausti@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×